Lífið

Mynda­veisla: Fyrstu Fiski­dags­tón­leikarnir í fjögur ár

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Inga Sæland og Eiríkur Hauksson voru meðal þeirra sem tóku lagið á tónleikunum.
Inga Sæland og Eiríkur Hauksson voru meðal þeirra sem tóku lagið á tónleikunum. Viktor Freyr

Fiskidagurinn mikli var haldinn hátíðlegur á Dalvík í gær í fyrsta skipti síðan árið 2019. Lífleg dagskrá hefur verið í bænum í aðdraganda hátíðarinnar sem náði hápunkti í gærkvöld með Fiskidagstónleikunum. 

Hinir ýmsu tónlistarmenn komu fram á tónleikunum en þar má nefna Diljá, Eirík Hauksson, Selmu Björnsdóttur, Herbert Guðmundsson, Friðrik Ómar, Diddú, Jógvan, Matta, Magna, Kristján Jóhannsson og fleiri. Því til viðbótar tóku Auddi og Steindi sín vinsælustu lög og Rúrik Gíslason söng sömuleiðis og dansaði.

Ljósmyndarinn Viktor Freyr var við tónleikana og tók nokkrar glæsilegar myndir sem kalla svo sannarlega á myndaveislu. 

Eurovisionfarinn Diljá var stórglæsileg á sviðinu.Viktor Freyr
Sviðið fer Rúrik Gíslasyni vel. Viktor Freyr
Diddú brosti sínu breiðasta á tónleikunum, eins og hún er vön.Viktor Freyr
Selma Björnsdóttir tryllti lýðinn. Viktor Freyr
Inga Sæland þingkona tók lagið á tónleikunum og það af miklum sóma. Viktor Freyr
Eyþór Ingi, Kristján Jóhannson og Friðrik Ómar.Viktor Freyr
Glæsileg eru þau Hanna Rún og Rúrik.Viktor Freyr
Magni Ásgeirsson lét sig ekki vanta. Viktor Freyr
Hér má álykta að verið sé að syngja um skýin sem fela ekki sólina af illgirni, heldur eru bara að kíkja á leiki mannanna.Viktor Freyr
Rokkarinn Eiríkur Hauksson lét eins og slíkur.Viktor Freyr
Dansarar Diddúar og Selmu stigu flott spor. Viktor Freyr
Fjöldi fólks var við tónleikana. Viktor Freyr






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.