Lífið

Gunnar Nel­­son og Fransiska Björk fögnuðu fæðingu dóttur sinnar

Íris Hauksdóttir skrifar
Fallega parið Gunnar og Fransiska halda áfram að bæta í barnahópinn.
Fallega parið Gunnar og Fransiska halda áfram að bæta í barnahópinn.

Bardagakappinn Gunnar Nelson og sambýliskona hans, Fransiska Björk Hinriksdóttir, fögnuðu komu dóttur sinnar nýverið. Barnið er seinni dóttir þeirra saman en Gunnar á son úr fyrra sambandi. 

Barnið, gullfalleg og heilbrigð stúlka, fæddist þann 13. ágúst síðastliðinn. Mæðgunum heilsast vel en tilkynnir Gunnar það í færslu sinni á Instagram að nú þurfi hann að fá sér stærri bíl. 

Gunnar tilkynnti fæðingu þriðja barnsins á Instagram nú fyrir stuttu. Hann segir þá fegða komna í minnihluta á heimilinu og þurfi fljótlega að kaupa sér stærri bíl. Gunnar/Instagram

Eldri börn parsins þau Stígur Týr og Míra virðast alsæl með litlu systur og ljóst að mikið fjör verður á heimilinu. 


Tengdar fréttir

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.