Markaðurinn klofinn hversu langt verður gengið við næstu vaxtahækkun
![Markaðurinn togast á um hvort Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, ásamt öðrum nefndarmönnum í peningastefnunefnd Seðlabankans, muni hækka vexti bankans um 25 eða 50 punkta næstkomandi miðvikudag.](https://www.visir.is/i/8367C9213DF7B39CBC5437232D862239A9508F936C4ECF99D94EBC2AEC8003FA_713x0.jpg)
Skiptar skoðanir eru á því hvort lækkandi verðbólga og kólnun á húsnæðismarkaði, ásamt vísbendingum um minnkandi einkaneyslu, séu nægjanlegt tilefni fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans til að fara í minnstu mögulegu vaxtahækkun eftir þann harða tón sem hún sendi frá sér í lok maí. Naumur meirihluti markaðsaðila væntir þess, samkvæmt könnun Innherja, að vextir bankans verði hækkaðir um 25 punkta á miðvikudaginn á meðan aðrir telja að hann eigi engra annarra kosta völ en að ráðast í 50 punkta hækkun með hliðsjón af óbreyttu verðbólguálagi og mikilvægi þess að ná upp raunstýrivöxtum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/EDAEE6034106F6AF39A2EF090E3EEDC2B57A393B1F1D535060C69CBC77719789_308x200.jpg)
Spá 50 punkta vaxtahækkun vegna stöðunnar á vinnumarkaði
Þrátt fyrir það að árstaktur verðbólgunnar hafi lækkað þrjá mánuði í röð er líklegasta niðurstaðan á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að nefndin hækki vexti um 50 punkta. Þetta er mat skuldabréfamiðlunar Arion banka sem bendir á að Seðlabankinn geti ekki horfti fram hjá því að vinnumarkaðurinn er enn á „yfirsnúningi“.
![](https://www.visir.is/i/393313244EC2A1F9F8A5972B56F700E2A0C1BDD1020E91E2470E51F52E6B056D_308x200.jpg)
Verðtryggð fyrirtækjalán sækja í sig veðrið eftir fjögurra ára dvala
Hagtölur gefa vísbendingu um að íslensk fyrirtæki séu í auknum mæli að velja verðtryggð lán eftir verulegar uppgreiðslur á slíkum lánum á árunum 2019 til 2022.