Víða von á bjartviðri og hiti gæti náð tuttugu stigum Atli Ísleifsson skrifar 23. ágúst 2023 07:00 Um helgina má búast við vætusömu veðri, einkum sunnan og vestantil. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri, norðlægri eða breytilegri átt í dag, en norðan kalda austast á landinu. Víða er von á bjartviðri, en austantil verður skýja með dálítilli vætu, auk þess sem líkur eru á stökum síðdegisskúrum syðst.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að áfram verði hlýtt í veðri sunnan- og vestanlands, og gæti hiti þar náð allt að tuttugu stigum við bestu aðstæður. Það verði þó aðeins svalara veður fyrir norðaustan. „Á morgun og verður áfram rólegt og hlýtt veður, og á föstudag gæti hiti farið yfir 20 stig víða á landinu. Um helgina má búast við vætusömu veðri, einkum sunnan og vestantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hæg breytileg átt. Skýjað austantil en þurrt að kalla, annars víða bjartviðri. Þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt, en gengur í sunnan 5-13 m/s vestast síðdegis og fer að rigna. Þykknar smám saman upp en lengst af bjart fyrir austan. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Á laugardag: Suðlæg átt 3-10, með rigningu eða súld, jafnvel talsverð vestantil um kvöldið, en úrkomuminna norðaustan- og austanlands. Áfram hlýjast norðaustantil, en heldur svalara sunnantil. Á sunnudag: Vestlæg átt. Rigning eða súld, en dregur úr úrkomu síðdegis. Hiti 8 til 19 stig, hlýjast suðaustanlands. Á mánudag: Norðlæg átt og víða dálítil væta. Kólnar fyrir norðan en hlýrra sunnantil. Á þriðjudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt og víða bjartviðri. Milt veður.
Veður Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Joe Biden með Covid Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Innlent Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Innlent Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Innlent Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent Samfélagið þurfi á börnum að halda Innlent Fleiri fréttir Minnkandi líkur á 20 stiga hita Rólegt sumarveður um allt land í dag Súldin í stutt sumarfrí Líkur á aurskriðum og grjóthruni á Vesturlandi Siggi stormur biðst afsökunar á sumarspánni sem ekki rættist „Mjög mikil úrkoma“ veldur skriðuhættu Gular viðvaranir alla helgina Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu um helgina Vara við snörpum vindhviðum en lofa áfram blíðu fyrir austan Hlýjast á Norðausturlandi í dag Nokkur umskipti frá helgarveðrinu Allt að tuttugu stiga hiti í dag Meðalhiti lægri í júní en í maí í fyrsta sinn Viðrar vel til hátíða víðs vegar um helgina Hitastig í júní undir meðallagi á öllum veðurstöðvum Besta veðrið áfram á Suðvesturlandi Bjart með köflum og hiti allt að sextán stigum Skýjað út vikuna Blautt en hiti gæti náð nítján stigum Hiti víða yfir tuttugu stigum á Austurlandi Allt að tuttugu stiga hiti sunnanlands Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi Gul viðvörun allan morgundaginn Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Hægviðri og lítilsháttar skúrir Yfir tuttugu gráður með mígandi rigningu næstu helgi Suðvestanátt með skúrum Fyrstu tuttugu dagar júnímánaðar í svalara lagi Rigning eða súld um mest allt landið Styttir upp í kvöld Sjá meira
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent