Lífið

Septemberspá Siggu Kling: Slakaðu á og leyfðu þér að lifa og vera til

Sigga Kling skrifar
fiskar

Elsku fiskurinn minn. Þú ert einstakur og í þér býr góðmenni. Ég held að ég hafi aldrei í lífinu hitt leiðinlegan fisk, og ekki heldur séð eins fjölbreyttar manneskjur eins og dvelja í þessu merki.

  • Fiskarnir eru frá 19. febrúar til 20. mars.

Þetta er einn mikilvægasti mánuður ársins fyrir þig, því að þú átt hið merkilega bláa ofurtungl sem að var 31. ágúst. Það er alveg saman hvaða hnútar eru í kring um þig og hvað mikið þér finnst að þú þurfir að leysa og laga, að allt virðist gerast af sjálfu sér. Svo slakaðu á og leyfðu þér að lifa og vera til.

Það er eins og þú hafir töfrasprota í hendinni á þér og getir veifað honum í þá átt sem að viljinn þinn fer. Allt sem þú hræðist er í raun og veru bara þoka, sem þú kemst auðveldlega í gegn um. Svo slepptu áhyggjuorkunni á haf út. 

Það er mikilvægt fyrir þig, hjartað mitt, að jafnvel henda þér í sjóinn, þó þú takir jafnvel ekki mörg sundtök þar. Þetta er tímabil endaloka, hreinsunar og er sérstaklega gott ef að veikindi hafa hrjáð þig eða eitthvað annað haldið þér niðri.

Þú finnur að þú eflir friðinn og þó að það læðist að þér leiði, þá er það bara eðlilegt. Ef að þú ert á lausu, þá er sérkennileg orka á ferðum. Þú átt jafnvel eftir að hitta einhvern sem að tengist hjartanu þínu á óvenjulegum stað og þó að ekkert endilega verði mikið úr því strax, þá er ástin að koma til þín. 

Þú þarft að dreifa verkefnum betur en þú hefur gert. Leyfa öðrum líka að leysa vandamál tengd stórfjölskyldunni eða vinum. Þú hefur svo magnaða og góða stjórnunarhæfileika, en átt það til að gera bara flest sjálfur og bæta á þig fleiri verkefnum og ná svo ekki andanum. 

Fyrsta vikan í september gefur þér merkilegt tákn, bæði í draumum og í skilaboðum til hugans. Þín magnaða næmni fyrir lífinu og lífsorkunni, tvöfaldast að minnsta kosti. Þú fyllist þakklæti gagnvart svo mörgu sem að þú hefur ekki áður fundist jafnvel vera blessun, en það eru svo margir í kring um þig sem eru englar í dulargervum.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Jon Bon Jovi, söngvari 2. mars
  • Rebel Wilson, leikkona 2. mars
  • James Arthur, söngvari 2.mars
  • Daniel Craig, leikkari, 2. mars
  • Jessica Biel, leikkona, 3. mars
  • Ronan Keating, söngvari, 3.mars
  • Robert Kardashian, raunveruleikaþáttastjarna, 17. mars
  • Adam Levine, söngvari, 18.mars
  • Queen Latifah, söngkona, 18. mars
  • Vanessa Williams, leikkona, 18. mars
  • Grover Cleveland, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 18. mars





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.