Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin úr loka­um­­­­ferð Bestu deildar karla: Magnað mark tryggði Víkingum sigur

Aron Guðmundsson skrifar
Danijel Dejan Djuric reyndist hetja Víkinga gegn Fram
Danijel Dejan Djuric reyndist hetja Víkinga gegn Fram Vísir/Hulda Margrét

Tuttugu og eitt mark var skorað í loka­um­ferð deildar­keppni Bestu deildar karla í í gær. Nú er endan­leg niður­röðun liða fyrir úr­slita­keppni deildarinnar, sem hefst þann 16. septem­ber næst­komandi, ráðin. Víkingur Reykja­vík er einum sigri frá Ís­lands­meistara­titlinum.

Þetta varð ljóst eftir 3-2 dramatískan útisigur liðsins á Fram í Úlfarsárdal þar sem að glæsilegt sigurmark leit dagsins ljós á lokamínútunum.

Klippa: Víkingar einum sigri frá titlinum eftir fimm marka spennutrylli

Í opnum og fjörugum leik þar sem bæði lið fengu fjölmörg færi til þess að skora nýttu Víkingar færi sín betur. Víkingar búa við þann munað að geta sett Matthías Vilhjálmsson, Niko Hansen og Danijel Dejan Djuric inná af varamannabekknum. Danijel Djuric gerði gæfumuninn í þessum leik með gæðum í spyrnu sinni.

Evrópuþynnka í Blikum

Eftir glæst afrek fyrr í vikunni mættu leikmenn Breiðabliks aftur til leiks í Bestu deildinni á heimavelli gegn FH í gær. Blikar tryggðu sér, eins og frægt er orðið sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á dögunum, en þurftu að sætta sig við 3-0 tap gegn FH. 

Klippa: Evrópuþynnkan sótti hart að Blikum

FH endar venjulegt tímabil í 5. sæti og Blikar í því 3. áður en úrslitakeppni mótsins hefst.

Dramatíkin allsráðandi í Eyjum 

ÍBV og KR gerðu stormasamt og hádramatískt jafntefli í Vestmannaeyjum í gær. Eyjamenn gáfust ekki upp og sýndu mikinn karakter í því að vinna sig inn í leikinn. 

Klippa: Dramatíkin algjör er ÍBV og KR tókust á

Þótt mikið hefði verið í húfi fyrir leikinn þýðir jafntefli að liðin enda daginn í sömu stöðu og þau hófu hann. KR-ingar nældu sér í 6. sætið sem þýðir að þeir fá að keppa í efri hluta Bestu deildar í ár en ÍBV endar í 11. sæti og munu því hefja erfiða baráttu um líf sitt í efstu deild þegar neðri hluti deildarinnar hefst eftir landsleikjahlé.

Jafntefli í Árbænum

Fylkir og KA mættust á Wurthvellinum í Árbænum og skiptu þar með sér stigunum. Ljóst er að bæði lið munu leika í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildarinnar eftir landsleikjahléið. 

Klippa: Fylkir og KA tókust á í Árbænum

Stjarnan rétti úr kútnum um leið

Stjarnan kom inn í leik gærdagsins gegn Keflavík eftir tap gegn KA í síðustu umferð. Stjörnunni nægði jafntefli til að gulltryggja sæti sitt í úrslitakeppni efri hluta Bestu en bætti um betur og fór af hólmi með öruggan 3-0 sigur.

Klippa: Stjarnan tyrggði sér endanlega sæti í efri hlutanum

 Valsmenn frestuðu fagnaðarlátum Víkinga

Fyrir lokaumferðina var ljóst að ef Víkingar myndu vinna sinn leik gegn Fram og Valur tapa sínum gegn FH, yrðu Víkingar Íslandsmeistarar. 

Valsmenn voru ekki á þeim buxunum að færa Víkingum titilinn með tapi en liðið var afar sannfærandi í leik sínum og vann að lokum 4-1 sigur á HK. 

Klippa: Valsmenn ekki í vandræðum með HK

HK fer í neðri hlutan þar sem liðið mun sennilega ekki berjast um mikið annað en 7. sætið og Forsetabikarinn góða. Valur er á leið í efri hluta deildarinnar og þarf á algjöru kraftaverki að halda til að ná Víkingum sem eru með 9 fingur á skyldinum góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×