Lífið

Mikið fjör á árs­há­tíð Hag­kaups

Íris Hauksdóttir skrifar
Verslunarkeðjan Hagkaup hélt árshátíð um helgina. 
Verslunarkeðjan Hagkaup hélt árshátíð um helgina. 

Árshátíð Hagkaups var haldin hátíðleg um helgina en herlegheitin fóru fram í Gamla bíói þar sem öllu var tjaldað til. Þeir Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar Steinþórsson sáu um veislustjórn en fjöldi listamanna stigu á stokk og skemmtu gestum.  

Glæsilegir gestir mættu og lyftu glösum yfir góðu gengi á undanförnu ári. Létt var yfir mannskapnum og ekki bætti úr skák þau fjölda skemmtiatriða sem glöddu gesti. Má þar helst nefna leikhópinn sem kom að söngleiknum Chicago sem sýndur var hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta leikári ásamt rapparanum góðkunna Emmsjé Gauta sem kom veislugestum í rækilegt stuð. 

Mikið var um dýrðir í Gamla bíói þar sem starfsfólk Hagkaups gerðu sér glaðan dag. 

Salurinn í Iðnó var um tíma kertalýstur.

Það var mikið fjör í Gamla bíói eins og sjá má. 

Emmsjé Gauti tryllti lýðinn.

Glæsilegur hópur starfar innan Hagkaups.

Boðið var upp á hárgreiðslu.

Fallegar blómaskreytingar tóku á móti veislugestum. 

Eva Laufey Kjartan markaðs og upplifunarstjóri Hagkaups skemmti sér vel ásamt eiginmanni sínum. 

Glaðar vinkonur á góðri stundu. 

Gleðin við völd. 

Skemmtiatriðin voru vel heppnuð.

Lilja Gísladóttir, snyrtisérfræðingur var í sérlegu stuði ásamt vinkonum. 

Glaðir veislugestir.

Flottir félagar.

Leikhópur Leikfélags Akureyrar tróð upp með atriðum úr söngleiknum Chicago sem sýndur var síðastliðið leikár. 

Þórdís Björk sem fór með annað aðahlutverkið í söngleiknum sló vægast sagt í gegn á ársthátíðinni. 

Jóhanna Guðrún steig sömuleiðis á stökk og flutti lög úr söngleiknum. 

Auddi Blö og Steindi sáu um veislustjórn með sinni alkunni snilld. 

Veislugestir boðnir velkomnir í upphafi kvölds. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.