Lífið

Hillary Clin­ton gestur Ragnars og Yrsu á Iceland Noir

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir stofnuðu Iceland Noir fyrir tíu árum. Rithöfundurinn, Fyrrverandi utanríkisráðherrann og forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton verður gestur á sérstökum viðburði degi eftir að hátíðinni lýkur í ár.
Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir stofnuðu Iceland Noir fyrir tíu árum. Rithöfundurinn, Fyrrverandi utanríkisráðherrann og forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton verður gestur á sérstökum viðburði degi eftir að hátíðinni lýkur í ár. Vísir/Vilhelm og EPA

Yrsa Sigurðardóttir segir Iceland Noir ekki lengur litla glæpahátíð. Sérstakur viðburður verður degi eftir að hátíðinni lýkur í ár þar sem Hillary Clinton og Louise Penny ræða pólitíska spennusögu sína, Ríki óttans. Viðburðurinn fer fram þann 19. nóvember. 

Hillary Rodham Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, kemur fram í Hörpu í tilefni af bókmenntahátíðinni Iceland Noir í nóvember. Með Hillary verður kanadíski metsöluhöfundurinn Louise Penny en saman skrifuðu þær bókina Ríki óttans [e. State of Terror] sem er pólitísk spennusaga.

„Miðasalan gengur ótrúlega vel. Við bjuggumst reyndar alveg við því,“ segir Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og að hún telji líklegt að það seljist upp um helgina.

Toguðu í alla spottana

„Hátíðinni lýkur á laugardeginum þannig þetta verður svona hliðarviðburður. Svo fannst okkur, af því að þetta er Hillary Clinton, að við þyrftum að fá einhvern mjög fínan sal og tókst að fá Eldborg,“ segir Yrsa létt. 

Hún segir í raun hafa gengið ótrúlega vel að fá Clinton á hátíðina en viðurkennir að þau hafi togað í alla þá spotta sem hægt var að toga í til að tryggja komu Clinton á hátíðina. 

„Hún verður á Írlandi þessa helgi í opinberri heimsókn og tekur stopp á leiðinni heim. Þær tvær eru að koma saman á sviði í fyrsta sinn. Þær skrifuðu þessa bók saman sem varð auðvitað metsölubók,“ segir Yrsa sem ekki hefur lesið bókina sjálf en segir hana næsta á listanum.

Eftir að þær hafa Hillary og Louise hafa talað mun Eliza Reid, forsetafrú, ræða við þær um bókina og lífshlaup þeirra.

Yrsa er annar stofnenda Iceland Noir en hinn er rithöfundurinn Ragnar Jónasson. Hún segir að löngu sé orðið uppselt á hátíðina og langur biðlisti að komast að. Hún segir dagskrána mjög þétta og marga gesti væntanlega.

„Við höfum haldið sjö hátíðir á síðustu tíu árum og hefur tekist að skapa okkur þannig sess að við getum fengið stór nöfn á hátíðina,“ segir Yrsa en meðal gesta á hátíðinni í ár eru Dan Brown, Neil Gaiman og Irvine Welsh.

„Irvine skrifaði Trainspotting og hann verður DJ í lokapartýinu.“

Ekki bara útlenskir gestir

Hátíðin einskorðast ekki aðeins við glæpahöfunda því meðal gesta verða einnig innlendir og erlendir gestir. Til að mynda leikarinn Richard Armitage og Ólafur Darri.

„Útlendingarnir elska það. Ólafur Darri er risi erlendis. Þetta hefur breyst frá því að vera lítil glæpahátið. Við vorum eiginlega komin í gegnum alla stóru glæpahöfundana og erum búin að útvíkka þetta. Það eru svo margar leiðir til að segja sögur,“ segir Yrsa að lokum.

Miðasala á viðburðinn hófst í kvöld á tix.is.


Tengdar fréttir

Valdi að verða sex­tug í stað þess að flytja til Eþíópíu

Yrsa Sigurðar­dóttir, glæpa­sagna­drottning og marg­faldur met­sölu­höfundur, fagnar sex­tugs­af­mæli í dag. Hún segir ekkert planað í kvöld, annað en að skrifa næstu bók. Hún ætlar að halda upp á stór­af­mælið með pompi og prakt í febrúar að jóla­bóka­flóði loknu og segist ekki geta beðið eftir að sjá Kulda, sam­nefnda mynd sem byggir á bók hennar og kemur í kvik­mynda­hús í næstu viku.

Skulfu á beinunum á for­sýningu Kulda

Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á sam­nefndri met­sölu­bók Yrsu Sig­urðardótt­ur frá árinu 2012. 

Íslenskar bókmenntir í bullandi útrás

Fyrri hluti úthlutunar til þýðinga á íslenskum bókum fyrir þetta ár hafa nú farið fram. 54 verk hljóta styrki að upphæð 9 milljónir króna til þýðinga á 15 tungumál.

Ragnar Jónasson hlaut Palle Rosenkrantz -verðlaunin

Ragnar Jónasson tók í dag við Palle Rosenkrantz -verðlaununum fyrir bestu þýddu glæpasöguna í Danmörku á Krimimessen sem fram fer í fangelsinu í Horsens. Þau fær hann fyrir þríleik sinn um lögreglukonuna Huldu, Dimmu, Drunga og Mistur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.