Sjóðurinn IS Haf fjárfestir í Thor Landeldi og eignast yfir helmingshlut
![Forsvarsmenn sjóðsins IS Haf og fyrirtækisins Thor Landeldi við undirritun samninga.](https://www.visir.is/i/7F3F300163984AAFB7D44110B7A4C6AD4AE6641A460E708AD7ECFD3C3A26C658_713x0.jpg)
Fjárfestingarsjóður sem einblínir á haftengda starfsemi hefur gengið frá samningum um fjárfestingu í Thor Landeldi sem mun tryggja honum yfir helmingshlut í eldisfyrirtækinu sem áformar uppbyggingu á tuttugu þúsund tonna laxeldi í Þorlákshöfn. Ásamt sjóðnum IS Haf munu reynslumiklir norskir fjárfestar úr laxeldi koma að fjárfestingunni.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/71E494E560412441A8A3886B6806FC3E3524DBC494E3BE1CB1358B1A4112B41B_308x200.jpg)
Laxeldið First Water eykur hlutafé um ríflega tólf milljarða
First Water, sem áður hét Landeldi og vinnur að uppbyggingu sjálfbærs laxeldis á landi í Þorlákshöfn, hefur lokið hlutafjáraukningu að andvirði 82 milljóna evra, eða um 12,3 milljarða króna. Fjárfestingarfélagið Stoðir er áfram stærsti hluthafi First Water eftir hlutafjáraukninguna.
![](https://www.visir.is/i/9E47DD72BA6CBF50F06F3D503C07BC3A26A29D153F81A367B2938774EDC2166E_308x200.jpg)
Veðja á nýja atvinnugrein og áforma tugmilljarða hlutafjársöfnun
Fjögur fyrirtæki hafa boðað risavaxna uppbyggingu í laxeldi á suðvesturhorni landsins og gangi þau áform eftir gæti ársframleiðsla á eldisfiski á landi numið vel á annað hundrað þúsund tonn innan fárra ára. Tvö þeirra eru nú að fara að biðla til fjárfesta, einkum innlendra, um að leggja þeim til samanlagt tugi milljarða króna í hlutafé og vonir standa til að sú fjármögnun klárist á næstu mánuðum.