WNkr og félagar í Breiðabliki mættu Ármanni í annarri umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO í gærkvöldi. Blikar þurftu að sætta sig við tap í leiknum, en wNkr getur þó huggað sig við það að hann átti bestu tilþrif gærkvöldsins.
Blikar voru 15-4 undir þegar wNkr náði á einhvern ótrúlegan hátt að vinna lotuna fyrir liðið, einn á móti fjórum liðsmönnum Ármanns.
WNkr tók út hvern liðsmann Ármanns á fætur öðrum og má sjá tilþrifin í spilaranum hér fyrir neðan.