Handbolti

Viktor Gísli stóð vaktina í sigri Nantes

Dagur Lárusson skrifar
Viktor Gísli í leik með Nantes
Viktor Gísli í leik með Nantes HBC Nantes

Nantes vann stórsigur á Toulouse í franska handboltanum í kvöld þar sem Viktor Gísli stóð vaktina í markinu.

Nantes var meira og minna með forystuna allan leikinn en staðan í hálfleik var 11-15. Í seinni hálfleiknum hélt Nantes áfram yfirburðum sínum og átti Viktor Gísli stóran hlut í því en hann varði tólf skot.

Eftir leikinn er Nantes í þriðja sæti deildarinnar eftir tvo leiki spilaða með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×