Rafíþróttir

ÍBV sá aldrei til sólar gegn Ten5ion

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmennirnir Pressi og Pat.
Leikmennirnir Pressi og Pat. Rafíþróttasamband Íslands

Ten5ion er komið upp í 3. sæti Ljósleiðaradeildarinnar eftir öruggan 16-7 sigur á ÍBV.

Leikurinn fór fram á Mirage þar sem Ten5ion komu sér fyrir í vörn í fyrri hálfleik. Ten5ion áttu miklu betri byrjun í leiknum og tóku mikla stjórn á leiknum og sigruðu fyrstu 5 lotur en loks í sjöttu lotu náðu leikmenn ÍBV að koma sprengjunni niður á A-svæði Mirage og tóku sína fyrstu lotu, staðan þá 5-1.

ÍBV voru þó hvergi nærri af baki dottnir í fyrri hálfleik, en þeir voru duglegir að taka A-svæði Mirage og koma sprengjunni niður. Þeir hótuðu Ten5ion-mönnum mikið eftir að sprengjan kom niður og tóku þannig lotu eftir lotu og minnkuðu muninn í 7-5. Einna helst stóð upp úr í fyrri hálfleik að Shine, leikmaður ÍBV felldi þrjá leikmenn Ten5ion með einni handsprengju í eldhúsinu hjá B-svæðinu. Ten5ion létu það þó ekki á sig fá og sigruðu fyrri hálfleikinn.

Staðan í hálfleik: 9-6

Seinni hálfleikur stefndi í einstefnu með Ten5ion í sókninni, Dezt og Blick, leikmenn Ten5ion voru báðir með yfir 20 fellur og stjórnuðu þeir nánast hverri einustu lotu. ÍBV sá hvergi til sólar í seinni hálfleik en þeir sigruðu aðeins eina lotu. Ten5ion spiluðu djarfa sókn og felldu andstæðinga sína trekk í trekk og stóðu að lokum með sigurinn í höndum sér.

Lokatölur: 16-7

Ten5ion eru þar með komnir í 3. sæti Ljósleiðaradeildarinanr en þeir eru nú með 6 stig og jafnir Þór og Ármanni á stigum. ÍBV eru enn á botni deildarinnar með 0 stig en þeir þurfa að leita enn frekar að sínum fyrsta sigri.






×