Veiði

Sjókvíaeldi mót­mælt við Austur­völl á morgun

Karl Lúðvíksson skrifar
Eldislax með sár af völdum laxalúsar í sjóeldiskví
Eldislax með sár af völdum laxalúsar í sjóeldiskví

Á morgun kl 15:00 verða mótmæli við Austurvöll þar sem sjókvíaeldi á laxi við landið verður mótmælt.

Mótmælin eru sprottin að mest megni vegna sleppinga úr kvíum Artic Fish fyrir nokkrum vikum en talið er að hátt í fjögur þúsund laxar hafi sloppið úr kvíum fyrirtækisins. Hluti þeirra hefur veiðst í ám á norður og vesturlandi og átak var sett af stað til að reyna ná sem mestu úr ánum með hjálp kafara eftir að veiðitíma lauk en ljóst er að fleiri hundruð eldislaxar eru ennþá óveiddir í ánum. Skaðinn sem þessi slepping getur valdið hinum Íslenska villta laxastofnu er gríðarlegur og hafa bæði veiðimenn og aðrir náttúruunnendur tekið höndum saman til að mótmæla þessum iðnaði.

 IWF, NASF, Landsamband Veiðifélaga og  söluaðilar veiðileyfa á Íslandi hvetja landsmenn til að sýna samstöðu á morgun. Mótmælin hefjast kl 15:00 við Austurvöll.






×