„Með afhendingu á Já, bætist við nýtt og öflugt vörumerki í hóp vefmiðla Sýnar sem samanstendur af Vísi, Tal, Bland og Spara vildarappi. Þá verður með kaupunum til ný tekjustoð í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga m.a. í kringum sýnileika og sölutorg,“ segir í tilkynningunni.
Páll Ásgrímsson, sem er starfandi forstjóri Sýnar eftir að Yngvi Halldórsson sagði upp störfum á mánudaginn, er ánægður með tímamótin.
„Það er mikið ánægjuefni að hafa nú fengið félagið afhent og innan tíðar bætist Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Já, og allt hennar framúrskarandi starfsfólk við mannauðinn hjá Sýn. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin að taka þátt í þeirri sóknarvegferð sem fyrirtækið er á,“ segir Páll í tilkynningu.
Vilborg Helga Harðardóttir er framkvæmdastjóri Já.
„Þetta eru spennandi tímamót fyrir Já. Við hlökkum til samstarfsins og þess að nýta styrkleika bæði Já og Sýnar til að efla enn frekar vöru- og þjónustuframboðið, viðskiptavinum og notendum til hagsbóta,“ segir Vilborg.
Vísir er í eigu Sýnar.