Lífið

Kolbrún Þöll og Ísak eignuðust stúlku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kolbrún Þöll og Ísak Óli eignuðust stúlku í vikunni.
Kolbrún Þöll og Ísak Óli eignuðust stúlku í vikunni. Kolbrún Þöll

Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll Þorradóttir og Ísak Óli Helgason eignuðust stúlku síðastliðinn þriðjudag, 17. október. 

Parið deildi gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á samfélgasmiðlum með fallegri mynd af frumburðinum.

Kolbrún var í lykilhlutverki í íslenska kvennaliðinu sem varð Evrópumeistari í hópfimleikum árið 2021. Hún framkvæmdi erfiðustu stökk mótsins og var valin í úrvalslið þess í fjórða sinn.

Síðar það sama ár varð hún í 2. sæti í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2021 en hún var aðeins 58 stigum frá 1. sætinu.

Ári síðar lenti hún í því áfalli að slíta hásin og því gat hún keppt með landsliðinu á Evrópumótinu það árið. Síðasta sumar starfaði hún sem flugfreyja hjá Icelandair.

Kolbrún og Ísak hafa verið saman í nokkur ár. Ísak var á fótboltasamningi í háskóla í Boston og útskrifaðist þaðan síðasta vor. Hann er jafnframt sonur Helga Rúnars Óskarssonar, forstjóra 66°Norður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.