Eva segir mikilvægt að mikla ekki veitingarnar fyrir sér enda snúist undirbúningur þeirra að mestu um samverustundir fjölskyldunnar og um að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín til fulls.
Hún deilir hér með lesendum Vísis uppskriftum af hræðilegri hrekkjavökuköku og einföldum en ógnvekjandi vampírukökum sem hún mælir með að sem flestir prófi.
Hræðileg hrekkjavökukaka

Þrjú form 20cm
Botnar
- 170 g smjör, við stofuhita
- 400 g sykur
- 5 egg
- 380 g hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 1 dl hrein ab mjólk
- 1 dl mjólk
- 2 tsk. vanilludropar
- 1 tsk. rauður matarlitur
Hitið ofninn í 180°C með blæstri. Þeytið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli. Sigtið þurrefnin saman og hrærið vel.
Hellið súrmjólkinni, mjólkinni og vanilludropum saman við og hrærið. Setjið matarlitinn út í lokin og blandið vel saman. Smyrjið þrjú form og setjið smjörpappír í botninn á þremur hringlaga formum.
Skiptið deiginu jafnt í formin og bakið við 180°C í tuttugu mínútur. Best er að kæla botnana vel áður en þið setjið á þá krem.

Vanillukrem
- 500 g flórsykur
- 500 g smjör, við stofuhita
- 1 tsk. vanilludropar
- 100 g brætt hvítt súkkulaði
Þeytið smjörið þar til það er létt og ljóst. Bætið flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum. Bætið vanilludropum og hvíta súkkulaðinu út í og þeytið áfram. Setjið kremið á milli botnanna og þekjið kökuna með kreminu.
Ég keypti tilbúinn sykurmassa sem hjúpaði kökuna með, bjó síðan til rautt dripp og skreytti með dóttur minni.
Dripp
- 60 ml rjómi
- 60 g hvítt súkkulaði
- Rauður matarlitur
Hitið rjómann að suðu. Saxið súkkulaði og hellið rjómanum saman við, leyfið þessu að standa óhreyfðu í þrjár mínútur. Þá má hræra vel saman þar til sósan er silkimjúk. Ef þið ætlið að lita drippið þá er það gert á þessu stigi.
Ég setti rauðan matarlit fyrir hræðilegt blóð. Leyfið drippinu að standa svolítið en með því þykknar drippið og auðveldara að skreyta kökuna með því.
Ógnvekjandi vampírukökur

Súkkulaðibitadeig, frá Evu Laufeyju.
Tilbúið smjörkrem
Litlir sykurpúðar
Rauður matarlitur
Möndlur
Skerið kökudeigið í jafn stóra bita og mótið kúlur. Bakið við 180 gráður með blæstri. Hrærið smjörkremi og rauðum matarlit saman. Kælið kökurnar, skerið í tvennt og smyrjið með rauðu smjörkremi. Raðið litlum sykurpúðum á milli og setjið tvær möndluflögur sem eru að sjálfsögðu vampírutennur.
Njótið þess að skreyta kökurnar með fólkinu ykkar.