Sport

Dagskráin í dag: Man. Utd tekur á móti Newcastle í bikarnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Manchester United og Newcastle eigast við í enska deildarbikarnum í kvöld.
Manchester United og Newcastle eigast við í enska deildarbikarnum í kvöld. Joe Prior/Visionhaus via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á sex beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi og ber þar hæst að nefna viðureign Manchester United og Newcastle í enska deildarbikarnum.

Stöð 2 Sport

Fjölnir og Njarðvík eigast við í Subway-deild kvenna í körfubolta klukkan 19:05 áður en Subway Körfuboltakvöld tekur við og gerir umferðina upp.

Stöð 2 Sport 4

Bein útsending frá TOTO Japan Classic á LPGA-mótaröðinni í golfi hefst klukkan 03:00 eftir minætti á Stöð 2 Sport 4.

Stöð 2 eSport

RLÍS deildin í Rocket League heldur áfram á Stöð 2 eSport og hefst bein útsending klukkan 18:30.

Vodafone Sport

Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Newcastle eigast við í fjórðu umfrð enska deildarbikarsins í kvöld, en bein útsending hefst klukkan 20:10.

Að lokum fyrlgjumst við með viðureign Diamonsbacks og Rangers í MLB-deildinni í hafnarbolta frá klukkan 23:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×