Lífið

Inga Lind bætist í hóp glæsi­legra ein­hleypra kvenna

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Inga Lind og Árni eru flutt í sundur.
Inga Lind og Árni eru flutt í sundur. Helgi Ómars

Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona, fer einhleyp inn í veturinn. Nýlega slitnaði upp úr sambandi hennar og eiginmanns hennar, Árna Hauks­sonar fjár­fest­is. 

Inga Lind er einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins Skot productions og hefur farið mikinn í framleiðslu undanfarin ár. Þar áður var starfaði hún í fjölmiðlum en það var einmitt á fjölmiðlavaktinni sem leiðir þeirra Árna lágu fyrst saman.

Þá hefur Inga Lind verið áberandi í umræðunni um laxeldi undanfarin misseri. Hún stýrði fjölmennum mótmælum á Austurvelli á dögunum. Þá hefur hún skrifað pistla um málefnið sem er henni hugleikið.

Inga Lind og Árni hafa búið í glæsilegu 760 fermetra einbýlishúsi við Mávanes á sjávarlóð á Arnarnesi í Garðabæ frá árinu 2012. Þar áður bjuggu þau nokkrum götum ofar í Tjaldanesi. 

Inga Lind er ein eftir í kotinu þar sem Árni er fluttur út. Mbl.is segir Árna hafa flutt sig í póstnúmerið 101 í Reykjavík.

Samtals eiga þau fimm börn, þrjú saman og svo hvort sitt barnið úr fyrri samböndum.

Vísir fjallaði á dögunum um hóp föngulegra og einhleypra kvenna og óhætt að segja að Inga Lind sé flott viðbót við þann glæsilega hóp. Umfjöllunina má sjá að neðan.


Tengdar fréttir

Inga Lind mætti í einkapartý

Það var heldur betur góð stemmning á Hverfisgötunni í gær þar sem eigendur Röntgen buðu útvöldum til haustfögnuðar. Staðurinn var lokaður almenningi á milli 17 og 19 á meðan gestir nutu drykkja og matar auk tónlistar.

Inga Lind segir marga vera með fordóma fyrir of feitu fólki

"Sykurinn er allstaðar, það kom mér mest á óvart,“ segir Inga Lind Karlsdóttir í viðtali við Reykjavík síðdegis, en hún vann heimildarþætti um mataræði og offituvandamál á Íslandi en þættirnir, sem heita Stóra þjóðin, eru sýndir á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.