Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling: Veldu það sem er verðugt að berjast fyrir

Sigga Kling skrifar
vogin

Elsku vogin mín, það eru búnar að vera töluverðar flækjur í lífsmynstrinu þínu. Einhvers konar kóngulóarvefur festir þig og þú veist ekki alveg í hvora áttina þú átt að fara.

  • Vogin er frá 23. september til 23. október.

Sumir segja að þeir séu á krossgötum þegar að þetta gerist, en sjáðu, krossgötur gefa einmitt fleiri möguleika en einn. Veldu þá leið sem þú vilt fara, þá lægja lífsins stormar í kringum þig. 

Ekki sjá eftir neinu eða neinum því allt er eins og það á að vera. Þér finnst þú ekki koma öllum þínum hugmyndum á framfæri, því núna er ekki alveg rétti tíminn til þess að framkvæma margt í einu.

 Svo kláraðu bara eitt verkefni í einu, dæmdu þig alls ekki fyrir það að þú ættir að gera meira því enginn er að spá í þínum farvegi nema þú sjálfur. Svo haltu í hendina á sjálfum þér og stormaðu áfram.

Klippa: Nóvemberspá Siggu Kling - Vogin

 Það er töluvert slúður og flest tengt lygi í kringum þig en treystu fyrst og fremst eðlisávísun þinni og hjarta þínu og láttu ekki fólk sem er útsmogið eða vitleysu hafa áhrif á þitt fjölbreytta hjarta. 

Tuttugasta og áttunda október var tunglmyrkvi og þetta er tungl nautsmerkisins. Á þeim tíma gæti orðið tilfinningaóeirð eða tengingar við of miklar tilfinningar því fallegi Venus tengist þessu tungli.

 Svo vertu viss um hvar tilfinningarnar þínar liggja, því breytingar í ástinni geta átt eftir að ógna lífsmynstrinu þínu. Ferskur og sterkur kraftur byrjar svo sannarlega tuttugasta og þriðja nóvember og upp frá því hefur enginn stjórn á tilfinningum né ákvörðunum nema þú hin mikla og merkilega vog. 

„Pick your battles,“ veldu það sem er verðugt að berjast fyrir. Slepptu öðru alfarið úr huga þínum. Þér er boðið í ævintýralegt ferðalag, hvort sem það er stutt eða langt, núna eða á næsta leiti, og þar gerast merkilegir hlutir. 

Á meðan á þessu ferðalagi stendur þá er eins og þú fáir opinberun og veist alveg með sanni hvað er rétt og hvað er rangt. Útkoman hjá þér er SIGUR.

Kossar g knús

Sigga Kling

  • Will Smith, leikari, 25. september
  • Avril Lavigne, söngkona, 27. september
  • Friðrik Ómar, söngvari, 4. október
  • Lilja Dögg Afreðsdóttir, stjórnmálakona, 4. október
  • Friðrik Dór Jónsson, söngvari, 7. október
  • John Lennon, söngvari 9.október
  • Zac Efron, leikari, 18. október
  • Snoop Dog, rappari, 20 október
  • Kim Kardashian, raunveruleikastjarna, 21. október





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.