Meðal gesta voru Kári Sverrisson, Sólbjört Sigurðardóttir, Pattra, Patrekur Jaime, Eva Dögg Rúnarsdóttir, Erna Hrund Hermannsdóttir og Kolbrún Vignis, svo fáir einir séu nefndir
Óhætt er að segja að mikil gleði ríkti yfir hópnum sem nánast titraði af spennu yfir þeirri þróun að kynlífstæki séu orðin sjálfsagður hluti af lífi landsmanna.
Markmiðið með sölunni er að efla samtalið um kynheilsu í samhengi við heilbrigðan lífsstíl og tala um málefnið á faglegan og fallegan máta kinnroðalaust. Fleiri lyfjaverslanir hafa boðið upp á unaðsvörur, þeirra á meðal Reykjanesapótek sem reið á vaðið í samstarfi við Losta.
„Kynheilsa er hluti af heilbrigðum lífsstíl, að þekkja okkur sjálf, hlusta á líkamann okkar og tilfinningar,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir framkvæmdastjóri markaðsmála, vörusviðs og stafrænna lausna hjá Lyfju.
Fyrirtækið hannaði öskjur í samstarfi við Gerði Huld Arinbjarnardóttur, eiganda kynlístækjaverslunarinnar Blush. Markmiðið í hönnunarferlinu var að opna umræðuna, fræða fólk um kynlífstæki og mikilvægi þess að stunda heilbrigt og gott kynlíf.
Unaðs-öskjurnar eru tvær og innihalda sérvaldar vörur sem styðja við kynheilbrigði sem eiga að henta vel til að njóta með sjálfum sér eða öðrum. Þar má finna sleipiefni, samskiptaspil og kynlífstæki, sem eru sérvalin og í uppáhaldi hjá Gerði.