Hver vill ekki eiga eitt kósíkvöld í desember? Íris Hauksdóttir skrifar 24. nóvember 2023 10:18 Kjalar Marteinsson og Rakel Pálsdóttir gáfu nýverið út jólalagið Kósíkvöld í des. „Ég myndi segja að þetta sé akkúrat lagið sem kemur þér í jólaskap og jafnvel út á dansgólfið,” segir Gunnar Ingi Guðmundsson lagahöfundur. Lagið Kósíkvöld í des kom nýverið á streymisveitur en þau Rakel Pálsdóttir og Kjalar Martini Kollmar sjá um flutninginn.
Þetta er í fyrsta skipti sem þau Rakel og Kjalar leiða saman hesta sína. Þau segjast bæði virkilega sátt með útkomuna og geta vel hugsað sér að henta í annað lag fyrir næsta vor sem dúett. Lagið er eftir lagahöfundinn Gunnar Inga Guðmundsson og textinn er eftir Gústaf Lilliendahl. Gunnar Ingi lagahöfundur segir mikilvægt að staldra við á aðventunni og njóta stundarinnar.Ólöf Sif Þráinsdóttir Að sögn Gunnars varð lagið til þegar hann var að fletta í gegnum símann sinn. „Ég fann óvænt lítinn lagbút og fannst hann bæði góður og grípandi. Það tók nokkurra stund að fullklára lagið en sumir kaflar voru erfiðari en aðrir hvað lagasmíðina varðar. Ég sendi prufu upptöku á Rakel og Kjalar og þau voru strax til í þetta. Eftir það sendi ég lagið á Gústaf þar sem við köstuðum hugmyndum á milli okkar um það hvað textinn ætti að fjalla um og þetta er útkoman. Mig langaði til að útfæra lagið í nútímalegum 80’s stíl og tel ég það hafa tekist mjög vel. Ég er mjög sáttur við útkomuna og upptökuferlið gekk mjög vel.” Jóla nútvitundar hugvekja Spurður um hvað lagið fjalli segir Gunnar það vera hálfgerða jóla núvitundar hugvekju. „Það fjallar um tilhneigingu fólks í kringum jólahátíðina að einblína á hluti sem skipta engu máli. Þegar öllu er á botninn hvolft er það samveran sem skiptir mestu máli. Það er mikilvægt að taka öll litlu augnablikin sem gerast á aðventunni og gefa þeim meira rými frekar en stressið og álagið sem við eigum til að gefa of mikið pláss í tilverunni. Hvort sem það er klisja eða ekki þá er samt mikilvægt að staldra aðeins við og njóta saman. Það má segja að Kósíkvöld í des sé einhverskonar jóla núvitundar hugvekja sem minnir okkur á hvað það er sem skiptir máli í amstri dagsins.” Þetta er í fyrsta sinn sem þau Rakel og Kjalar vinna saman en segjast spennt að endurtaka leikinn sem fyrst.aðsend Gáfu öll út plötur á árinu Kjalar spratt fram á sjónarsviðið síðastliðinn vetur með þátttöku sinni í Idol stjörnuleit og Söngvakeppni sjónvarpsins og vakti þar mikla athygli. Hann segist hafa verið umkringdur tónlist allt sitt líf. Kjalar gaf út plötuna Kjalar við píanóið þann 6.október sem er hans fyrsta plata og hlaut góðar viðtökur. Tónlistarferill Rakelar hófst með sigri hennar í Söngvakeppni Samfés árið 2004. Síðan þá hefur hún stundað nám í Tónlistarskóla FÍH, stofnað hljómsveitina Hinemoa og sungið raddir í ýmsum verkefnum, nú síðast á Halloween horror show sem og á afmælistónleikum með Stjórninni sem bakrödd. Þetta er í annað sinn sem þau Gunnar og Rakel vinna saman en á síðasta ári gáfu þau saman út plötuna Jólin í hjarta mér. Þríeykið á það svo sameiginlegt að hafa öll gefið út plötur á þessu ári og fullyrða þau að lagið Jólakvöld í des eigi eftir að koma öllum í jóla-kósí stuð á aðventunni. Áhugasamir geta hlustað á lagið í spilaranum hér fyrir neðan.
Tónlist Jólalög Tengdar fréttir Frumsamdi tíu tónverk um eyðibýli Gunnar Ingi Guðmundsson bassaleikari, lagahöfundur og nemandi í kvikmyndatónsmíðum gaf í dag út sína fyrstu sóló plötu sem nefnist Eyðibýli sem hefur að geyma tíu frumsamin tónverk í kvikmyndastíl. Platan er aðgengileg á Spotify og Apple music. 1. september 2023 09:04 Mest lesið Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ Lífið Ástin blómstraði í karókí Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Ása Steinars á von á barni Lífið Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Lífið Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Lífið Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Lífið Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Lífið Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Lífið Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Lífið Fleiri fréttir Ása Steinars á von á barni Ástin blómstraði í karókí Michelle Trachtenberg er látin Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Steinhissa en verður Dumbledore Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Hann kann að dansa, maður minn!“ Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Rappar um vímu Sjóðheit stemning í eftirpartýi Flóna 38 ára hreinn sveinn: Er til leið út úr þessum vítahring? Ísraelar þekkja ásakanir um stuld af eigin raun Ómótstæðilegar Créme Brulée bollur með stökkum sykurhjúp Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Heillandi heimili í Hlíðunum Hótaði óprúttnum grínista hálsbroti Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Langar að verða menntamálaráðherra og breyta miklu í kjölfarið Mikil ást á klúbbnum Gellurnar fjölmenntu í afmæli Porra Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Sjá meira
Frumsamdi tíu tónverk um eyðibýli Gunnar Ingi Guðmundsson bassaleikari, lagahöfundur og nemandi í kvikmyndatónsmíðum gaf í dag út sína fyrstu sóló plötu sem nefnist Eyðibýli sem hefur að geyma tíu frumsamin tónverk í kvikmyndastíl. Platan er aðgengileg á Spotify og Apple music. 1. september 2023 09:04