Góður sigur Gummersbach í Íslendingaslag Smári Jökull Jónsson skrifar 12. nóvember 2023 15:45 Elliði Snær og félagar hans fagna sigri fyrr á tímabilinu. Vísir/Getty Gummersbach vann góðan sigur á Melsungen í sannkölluðum Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Rhein-Neckar Löwen þurfti að sætta sig við tap gegn Kiel.
Alls voru fjórir Íslendingar í eldlínunni í leik Gummersbach og Melsungen. Bæði lið má kalla spútniklið hingað til í deildinni og meðal annars var Melsungen í toppsæti deildarinnar um tíma. Gestirnir í Melsungen byrjuðu betur gegn lærisveinum Guðjóns Vals Sigurðssonar. Melsungen komst í 10-7 snemma í fyrri hálfleik sneru leiknum við og komust í 18-15 fyrir lok fyrri hálfleiks. Staðan að honum loknum var 20-18 Gummersbach í vil. Í síðari hálfleik tóku heimamenn yfirhöndina. Þeir leiddu með tveimur til þremur mörkum og komust fimm mörkum yfir um miðjan hálfleikinn. Þeir sigldu sigrinum í höfn og unnu að lokum 37-31 sigur. Elliði Snær Viðarsson átti góðan leik fyrir Gummersbach og skoraði 5 mörk en hann fór af velli með rautt spjald þegar átján mínútur voru eftir vegna þriggja brottvísana. Elvar Örn Jónsson var sömuleiðis öflugur í liði Melsungen og var markahæstur með 8 mörk. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað í liði Melsungen. Ýmir Örn Gíslason og Arnór Snær Óskarsson voru í liði Rhein-Neckar Löwen sem mætti Kiel á heimavelli sínum. Kiel var sterkari aðilinn í leiknum og leiddi 14-9 að fyrri hálfleik loknum. Rhein-Neckar náði mest að minnka muninn í 19-17 í síðari hálfleik en þá náði Kiel góðu áhlaupi og vann að lokum nokkuð öruggan sigur. Lokatölur 31-25.
Þýski handboltinn Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Í beinni: Liverpool - Brighton | Reyna að lægja öldurnar í ólgusjó Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Handbolti Fleiri fréttir Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Haukar - KA/Þór | Tvö lið sem ætla að enda taphrinu Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Sjá meira