Fjárfestar loka framvirkum samningum með krónunni vegna ótta við eldgos
![Eftir að hafa styrkst nánast stöðugt á fyrstu átta mánuðum ársins hefur krónan verið að gefa eftir frá því í byrjun septembermánaðar – en á þeim tíma hefur hún meðal annars veikst um liðlega átta prósent gagnvart evru.](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_713x0.jpg)
Gengi krónunnar hefur fallið skarpt á síðustu dögum samhliða því að auknar líkur eru nú taldar á eldgosi á Reykjanesskaga sem gæti meðal annars raskað verulega starfsemi stórra ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Talsvert hefur verið um að fjárfestar séu að loka framvirkum stöðum sínum með krónunni í þessum mánuði sem hefur ýtt enn frekar undir gengislækkun krónunnar.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðir halda svipuðum takti í gjaldeyriskaupum og í fyrra
Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi aukið nokkuð við fjárfestingar sínar í erlendum gjaldmiðlum yfir sumarmánuðina samhliða auknu innflæði gjaldeyris til landsins vegna mikils fjölda ferðamanna þá styrktist gengi krónunnar stöðugt á tímabilinu. Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna jukust um liðlega fimmtán prósent á fyrstu átta mánuðum ársins en flestir sjóðir eru hins vegar enn talsvert fjarri innri viðmiðum um hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum sínum.
![](https://www.visir.is/i/7840B55F91C32C7FF947B8AA4FBC3579EE6B9BEAAA4F35B0E06DBFB6276C4A7F_308x200.jpg)
Skuldabréfamarkaðurinn verið að dýpka og veltuhlutfallið ekki hærra um árabil
Framkvæmdastjóri eins af stærstu lífeyrissjóðum landsins furðar sig á umræðu um grunnan skuldabréfamarkað hérlendis, sem veltutölur sýni að hafi í reynd verið að dýpka fremur en hitt að undanförnu, en stjórnendur Seðlabankans hafa sagt ekki hægt að draga of miklar ályktanir til skemmri tíma um verðbólguálagið byggt á viðskipum á þeim markaði. „Hvenær var það þá síðast hægt?“, spyr hann og segir mikilvægt að bæta upplýsingamiðlun þegar rætt sé um skilvirkni markaða.