Lífið

Arna Ýr og Vignir eiga von á stúlku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Arna og Vignir héldu kynjaveislu í gær fyrir fjölskyldu og vini þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns.
Arna og Vignir héldu kynjaveislu í gær fyrir fjölskyldu og vini þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns. Skjáskot

Arna Ýr Jóns­dótt­ir feg­urðardrottn­ing og hjúkrunarfræðinemi á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, Vigni Þór Bollasyni, kírópraktor. Parið tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að von sé á stúlku.

„Við fórum í 20 vikna sónar í dag og fengum þær fréttir að litla brúðkaupsferðar barnið okkar er fullkomlega heilbrigt í alla staði. Við bæði höfðum „gut feeling” frá degi eitt og sú tilfinning stóðst í dag,“ skrifa hjónin í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

Arna Ýr og Vignir héldu kynjaveislu fyrir fjölskyldu og vini þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns.

Fyrir eiga hjónin tvö börn. Ástrós Mettu fjögurra ára og Nóa, tveggja ára.


Tengdar fréttir

Brúðkaupsferð fegurðardrottningar draumi líkust

Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir og eiginmaður hennar Vignir Þór Bollason kírópraktor eru stödd í brúðkaupsferð á Ítalíu. Parið nýtur lífsins við Como vatn á Norður-Ítalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.