Lífið

Myndaveisla: Stjörnum prýtt opnunarteiti Verona

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Verslunin Verona opnaði á dögunum við Ármúla 17.
Verslunin Verona opnaði á dögunum við Ármúla 17.

Húsfyllir var í opnunarteiti verslunarinnar Verona í gær þar sem gestum gafst tækifæri á að leggjast í rúmin og hvíla sig á milli samtala. Meðal gesta voru Ragnhildur Gísladóttir, Birkir Kristinsson, Eva María Jónsdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Birgitta Haukdal, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Magnús Geir Þórðarson, Edda Hermannsdóttir og fleiri góðir gestir.

Verslunin er í eigu fjölmiðlakonunnar, Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hauks Inga Guðnasonar og vinahjónanna, Martinu Vigdísar Nardini og Jóns Helga Erlendssonar.

Í Verona sameinast tvær rótgrónar verslanir; Duxiana og Gegnum glerið sem voru áður í Ármúla 10. Vörumerkið Duxiana er í farabroddi hjá Verona en 150 af bestu hótel heims reiða sig á fyrsta flokks gæði DUX-rúma, þar á meðal sjö stjörnu hótelið Burj Al Arab í Dubai.

Í opnunni gafst gestum færi á að kynna sér rúmin auk þess sem ný húsgögn frá Duxiana auk dúnkodda og sænga voru til sýnis í nýju versluninni. Þá mátti einnig sjá úrval ljósa frá Louis Poulsen, sængurföt frá Georg Jensen Damask og GANT auk annarrar handgerðrar smávöru.

Eigendur Verona. Jón Helgi Erlendsson, Martina Vigdís Nardini, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Haukur Ingi Guðnason ásamt Astrid Boysen verslunarstjóra VeronaÍris Dögg

Eigendur Verona segja að verslunin fari vel af stað og viðtökur hafi verið framar björtustu vonum.

„Við erum mjög þakklát fyrir þessar góðu viðtökur og hlökkum til framhaldsins,”  segir Haukur Ingi Guðnason, framkvæmdastjóri Verona.

Edda Hermannsdóttir, Hlaðgerður Íris Björnsdóttir, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Brynja Dan Gunnarsdóttir.Íris Dögg
Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Hafþór Hafliðason.Íris Dögg
Benedikt Einarsson og Birgitta Haukdal.Íris Dögg
Elín Sveinsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir.Íris Dögg
Það fór vel um gesti í boðinu.Íris Dögg
Anna Sigríður Arnardóttir og Martina Vigdís Nardini.Íris Dögg
Sigurgísli Bjarnason og Sandra Hauksdóttir.Íris Dögg
Rúnar Freyr Gíslason og Guðrún Stefánsdóttir.Íris Dögg
Valur Freyr Einarsson og Ilmur Stefánsdóttir.Íris Dögg
Kristín Jóhannsdóttir,Steinar Jóhannsson , Steinar B. Valsson og Elísabet Steinarsdóttir ásamt minnsta fjölskyldumeðliminum.Íris Dögg
Kristín Jóhannsdóttir, Steinar Jóhannsson, Elísabet Steinarsdóttir, Jóhann Þorvarðarson og Martina Vigdís Nardini.Íris Dögg
Óskar Páll Sveinsson og Hildur Árnadóttir, eigandi Studio Homestead.Íris Dögg
Ingunn Hauksdóttir, Georg Haraldsson og Hjördís Jónsdóttir.Íris Dögg
Jón Helgi Erlendsson og Leifur Welding.Íris Dögg
Ragnhildur Steinunn og Birgitta Haukdal.Íris Dögg
Ingunn Hauksdóttir, Georg Haraldsson og Hjördís Jónsdóttir.Íris Dögg
Martina Vigdís Nardini, Ragnhildur Gísladóttir og Birkir Kristinsson.Íris Dögg
Ragnhildur Steinunn og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.Íris Dögg
Eva María Jónsdóttir og Sigurpáll Scheving.Íris Dögg
Guðrún Skúladóttir og Magnea Erla Ottesen.Íris Dögg
Guðni Kjartansson, Haukur Ingi Guðnason, Magnea Erla Ottesen, Margrét Erla Guðnadóttir, Harpa Guðnadóttir.Íris Dögg
Hrefna Kristín Jónsdóttir og Ármann Andri Einarsson.Íris Dögg
Aron Bjarki Jósepsson og Davíð Freyr Þórunnarson.Íris Dögg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.