Sport

Milan komst í þriðja sætið

Dagur Lárusson skrifar
Theo Hernandez fagnar marki sínu.
Theo Hernandez fagnar marki sínu. Vísir/getty

AC Milan komst upp í þriðja sæti deildarinnar með sigri á Fiorentina í kvöld.

Fyrir leikinn var Milan í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig á meðan Fiorentina var í sjötta sætinu með 20 stig.

Leikurinn mun seint fara í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi en eina mark leiksins kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Þá fékk AC Milan vítaspyrnu og á punktinn steig Theo Hernandez sem skoraði af miklu öryggi og var staðan 1-0 í hálfleiknum.

Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleiknum og þar við sat. Lokatölur 1-0 en eftir leikinn er Milan í þriðja sætinu með 26 stig.

Það var þó eitt athyglisvert sem gerðist einnig í leiknum en það var þegar Francesco Camarda kom inn á fyrir AC Milan en hann varð þá yngsti leikmaður í sögu Serie A en hann er aðeins 15 ára, átta mánaða og 15 daga gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×