Eftir frábæran sigur Egypta gegn Króötum væri auðvelt að benda á markvörðinn Mohamed Aly, liðsfélaga Stivens Valencia hjá Benfica í Portúgal, sem leikmann sem gæti reynst strákunum okkar erfiður ljár í þúfu.
Aly varði 14 skot gegn strákunum hans Dags Sigurðssonar, eða 38%, sem er afskaplega gert þó að sú frammistaða hafi svo fallið í skuggann af draumaleik Viktors Gísla Hallgrímssonar gegn Slóvenum.
Án stjörnu sem Aron leysti af hólmi
En Egyptar eru með marga aðra leikmenn sem vert er að nefna. Það hjálpar reyndar Íslandi að vinstri skyttan Ahmed Hesham, gjarnan kallaður Dodo, meiddist í leiknum gegn Króatíu, og áður hafði Yehia El-Deraa slitið krossband í hné í haust sem leiddi einmitt til þess að félag hans, Veszprém, sótti Aron Pálmarsson í Kaplakrika.
Snorri Steinn Guðjónsson hefur reyndar sínar efasemdir um að Dodo sé mikið meiddur.
Örvhenta skyttan Yahia Omar er næstmarkahæsti leikmaður PSG í Frakklandi í vetur, og var valinn besti maður mótsins í annað sinn í röð þegar Egyptaland varð Afríkumeistari fyrir ári síðan, þriðja skiptið í röð. Á meðan Ísland þarf að spjara sig án síns Ómars þá er Yahia Omar í fantaformi og hann varð markahæstur Egypta gegn Króötum með sex mörk, en þurfti reyndar til þess þrettán skot.
„Þannig var það ekki hjá Egyptalandi áður“
Omar, sem er 27 ára, er á sínu fjórða heimsmeistaramóti og segir Egypta núna alltaf mæta á HM með það í huga að vinna mótið. „Þannig var það ekki hjá Egyptalandi áður. Við horfðum bara á riðlakeppnina. Núna stefnum við alltaf á sigur og hvort sem það tekst eða ekki þá er það okkar markmið,“ sagði Omar við heimasíðu IHF.
Annar lykilmaður sem íslenska vörnin þarf að finna leiðir til að stoppa, eða að minnsta kosti að halda í skefjum, er stór og þungur línumaður að nafni Ahmed Adel sem er vanur að skora mikið fyrir Egypta. Hann spilar með Al Ahli í heimalandinu eins og stór hópur leikmanna landsliðsins.
Egyptar hafa endað á meðal átta efstu liða á síðustu þremur heimsmeistaramótum í röð, á meðan að Íslendingar hafa ekki náð svo langt síðan 2011. Spánverjar þurftu framlengingu til að slá Egypta út í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í ágúst, og Egyptaland hefur orðið Afríkumeistari þrjú síðustu skipti í röð.
Það er því alveg ljóst að allt þarf að ganga upp hjá strákunum okkar í kvöld, og að sigurliðið kemur sér í algjört dauðafæri á að fara í 8-liða úrslit mótsins.