Sport

Skotar Evrópu­meistarar í krullu þriðja árið í röð

Siggeir Ævarsson skrifar
Bruce Mouat, fyrirliði Skota einbeittur
Bruce Mouat, fyrirliði Skota einbeittur Skjáskot Youtube

Evrópumeistaramótið í krullu fór fram í Aberdeen í Skotlandi um helgina og voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi eftir æsispennandi úrslitaviðureign gegn Svíum.

Skotar höfðu harma að hefna frá vetrarólympíuleikunum þar sem Svíar höfðu betur. Í úrslitaviðureigninni sást glöggt að þarna voru tvö bestu lið heims að mætast en grípa þurfti til aukalotu til að knýja fram úrslit.

Þar reyndust taugar Skotanna sterkari, lokatölur 6-5. Skotar því Evrópumeistarar í krullu þriðja árið í röð en þetta er í fyrsta sinn sem þeir landa titlinum eftirsótta á heimavelli.

Það var fyrirliði liðsins, Bruce Mouat, sem renndi síðasta steininum eftir svellinu og tryggði liðinu titilinn, en hann hefur verið með liðinu síðan 2017.

„Að vinna þennan titil í Skotlandi fyrir framan fjölskyldu og vini sem fá ekki alltaf tækifæri til að sjá okkur keppa var frábært. Við munum halda virkilega gott partý! Áhorfendur voru frábærir og ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Ef einhver hefði sagt mér árið 2017 þegar við hófum þessa vegferð saman að við myndum vinna fjóra Evrópumeistaratitla hefði ég aldrei trúað því.“ - Sagði Mouat sigurreifur í samtali við BBC.

Hægt er að horfa á brot af því besta úr úrslitaviðureigninni hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×