Ef Instagram-færslurnar birtast ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Seiðandi Salka
Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld birti seiðandi mynd af sér.
Afmælis-skvísuferð
Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Jóhanna Helga Jensdóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Sigríður Margrét Ágústdóttir, Aldís Eik Arnarsdóttir og Hildur Sif Hauksdóttir fóru til Parísar um helgina í tilefni af þrítugsafmæli Hildar.
Allar birtu þær klassíska mynd af sér mynd við Eiffel-turninn.
Fyrsti í aðventu
Elísabet Gunnars tískudrottning fagnaði fyrsta í aðventu með bæjarrölti og notalegheitum í miðborginni.
Guðrún Helga Sørtveit skreytti heimilið á mínimalískan hátt.
Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður hélt í árlega jólahefð og gerði jólakonfekt í góðum félagsskap.
Dressaður í des
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti gengur prúðbúinn inn í jólavertíðina.
Rauðar varir
Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk Eggertsdóttir birti mynd glæsilega mynd af sér með jóla-rauðar varir.
Ekki bara tónlistarmaður
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, er ekki bara tónlistarmaður heldur líka módel.
Svörtu sandar lokið
Leikkonan Aldís Amah Hamilton fagnar því að tökum á Svörtu söndum þáttaröð tvö sé formlega lokið.
Jólafílingur í New York
Systkinin Björn Boði Björnsson og Birgitta Líf Björnsdóttir fóru með móður sinni Hafdísi Jónsdóttur í jólaferð til New York í vikunni.
Þrír uppáhalds
Áslaug Arna ráðherra birti mynd af sér og bræðrum sínum, prúðbúin.
Pósað í hvítu
Bríet pósaði í hvítu dressi frá 66° norður. Glæsileg að vanda.
Draumurinn varð að veruleika
Útvarpsmaðurinn Siggi Gunnars fagnaði 40 ára afmæli Rásar 2. „Hér hafið þið 12 ára Sigga sem lét sig dreyma um að starfa á Rásinni, eflaust að stæla Hvíta máva, í svokölluðum „útvarpsleik“ og svo 34 ára Sigga, starfsmann RÚV í dag sem brennur af ástríðu fyrir starfinu sínu,“ skrifar Siggi við myndir af sér.
Glamúr jólaförðun
Áhrifavaldastjarnan Embla Wigum birti myndskeið með hugmynd að jólaförðun.
Fertug og fabjúlöss
Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona fagnaði fjörutíu ára afmæli sínu um helgina.
Jóladúó
Tónlistarfólkið Gréta Salomé Stefánsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson gáfu út jólalag saman, Heimur þagnar, á dögunum.