Um er að ræða þeirra annað barn en fyrir eiga þau Viktor Svan, fimm ára.
Elísabet og Áki tilkynntu kynið með einlægu myndskeiði á YouTube rás Elísabetar. Þar má sjá þegar parið fer í sónar og þegar þau opna umslagið með miða sem segir til um kyn barnsins.
„Okkur langar náttúrulega mjög mikið í stelpu af því við eigum einn fullkominn strák en það skiptir engu máli. Bara að þetta sé heilbrigt barn,“ segir Elísabet sem hafði grunað að hún gengi með stúlku þar sem henni hefur liðið öðruvísi en á fyrr meðgöngu.
„Ég er svo stressuð,“ segir Elísabet. Stuttu síðar opnar Áki umslagið og dregur upp bleikan miða.
Myndskeiðið má sjá í spilaranum hér að neðan.
Brúðkaupsveisla síðar
Elísabet og Áki gengu í heilagt hjónaband í desember í fyrra, nánar tiltekið 22. desember. Athöfnin virðist hafa verið fámenn og lofa þau veislu síðar.
„Hjón síðan þá og ég elska þennan mann alltaf meira og meira. Ég veit ekki hvar ég væri án hans og öllu því sem við höfum búið til saman. 2026 we will party,“ skrifaði Elísabet og deildi myndum frá athöfninni á Instagram.