Sérfræðingar þáttarins fóru yfir íþróttaárið og ræddu meðal annars um gengi íslensku landsliðanna í fótbolta. Í umræðum um karlaliðið, og gengi þess eftir ráðningu Åge Hareide, gagnrýndi sjónvarpskonan Kristjana Arnarsdóttir stöðuna á þjóðarleikvangi Íslendinga:
„Ég held að vandamál fótboltans niðri í Laugardal í dag sé mikið stærra en hver er að þjálfa liðið,“ sagði Kristjana en brot úr Sportsíldinni má sjá hér að neðan. Áskrifendur geta horft á þáttinn með því að smella hér.
„Er stemning fyrir fjölskyldufólk úti í bæ að kaupa sér miða til að fara niður í Laugardal að horfa á landsliðin okkar spila fótbolta? Nei. Það er ekkert við Laugardalsvöll sem selur mér það að það sé gaman að koma þangað. Það eru Dominos-pítsur, kannski, og það er það eina,“ sagði Kristjana og hélt áfram:
„Liðin mæta á völlinn og það er bara fatahengi fyrir þau eins og er heima hjá mér í forstofunni. Það er svo margt svona sem ég held að væri auðvelt að breyta, og búa til aðeins meiri kúltúr í kringum að það sé gaman að fylgjast með liðunum okkar. Það hjálpar ekki, þegar liðin okkar eru ekki að spila upp á sitt besta, að þjóðin nenni ekki að mæta. Þetta spilar svolítið saman.“
Menn lofað upp í ermina á sér
Guðmundur Benediktsson tók undir og benti á að vallarmál íslenskra landsliða hefðu ekkert batnað í fleiri tugi ára.
„Eigum við ekki að hafa þetta gaman eða?“ spurði handboltaþjálfarinn Dagur Sigurðsson léttur, enda þátturinn að mestu leyti á léttu nótunum, en bætti við:
„Ég hef alveg áhyggjur af því hvert peningarnir eru að fara yfir höfuð. Bæði finnst mér verið að búa til millistjórnendur í íþróttahreyfingunni, of lítill peningur fara í grasrótina, og svo verður bara að fara í mannvirkjamálin af krafti. Menn hafa lofað þar upp í ermina á sér en það þarf að taka þau föstum tökum.“