Lífið

Fyrr­verandi ráð­herra orðinn kokkur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Eygló segir matreiðslunámið hafa verið eitt það erfiðasta sem hún hefur gert.
Eygló segir matreiðslunámið hafa verið eitt það erfiðasta sem hún hefur gert. Facebook

Eygló Harðardóttir, fyrrverandi alþingismaður Framsóknarflokks og félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lokið sveinsprófi í matreiðslu. Næst ætlar hún að byggja blokk og ljúka við torfbæinn sinn.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Eygló birti í dag. 

Þar skrifar hún „Búin að ljúka sveinsprófi í matreiðslu! Fyrir nokkrum árum lofaði ég að gera meira skemmtilegt: Byggja blokk, verða kokkur og ljúka við torfbæinn minn - og helst fyrir fimmtugt. Nú get ég strikað yfir kokkinn og blokkina á to do listanum.“

Í færslunni þakkar Eygló sérstaklega meistara sínum, Ólafi Helga Kristjánssyni og konu hans, Sólveigu Júlíönu Guðmundsdóttur, hjá Brasserie Kárnes. Hún þakkar einnig öllum dásamlegu kennurunum sínum í Menntaskólanum í Kópavogi, vaktstjórum og öllu frábæra fólkinu sem hún kynntist í náminu.

„Matreiðslunámið er eitt það allra erfiðasta sem ég hef gert, - leið stundum eins og ég hefði verið að hlaupa hálft maraþon eftir hverja tólf tíma vakt og að ég gæti bara eldað vondan mat í samanburði við alla snillingana sem ég var að vinna með,“ segir hún jafnramt.

Eygló endar færsluna á orðunum „Nú er bara að finna þessa sparsl spaða…“ Það er spurning hvort hún eigi við um blokkina sem hún ætlar að byggja eða torfbæinn sem á eftir að ljúka við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.