Lífið

Elín Metta fann ástina í örmum Sigurðar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigurður Tómasson og Elín Metta Jensen.
Sigurður Tómasson og Elín Metta Jensen.

Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri hjá VEX ehf. eru nýtt par. 

Parið hefur verið að stinga saman nefjum síðustu mánuði en Sigurður birti fyrstu myndina af þeim saman á Instagram um helgina. 

Elín Metta Jensen hefur verið ein fremsta knattspyrnukona landsins síðustu ár og hefur spilað 62 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún lagði skóna á hilluna eftir knattspyrnutímabilið 2022 og tók þá aftur fram í fyrrasumar og spilaði þá með Þrótti í Bestu deildinni. 

Sigurður er menntaður hagfræðingur og starfaði meðal annars hjá Viðskiptaráði Íslands og McKinsey & Company áður en hann var ráðinn til VEX. Sigurður er sonur Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra HS Orku, og Ólafar heitinnar Nordal, fyrrverandi dómsmálaráðherra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×