Lífið

Hollur bragða­refur fyrir helgina að hætti Röggu nagla

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ragga er þekkt fyrir að deila heilbrigðum lífsstíl og heilræðum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Ragga er þekkt fyrir að deila heilbrigðum lífsstíl og heilræðum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. Vísir/Vilhelm/Instagram

Sálfræðingurinn og einkaþjálfarinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, deilir uppskrift að hollum bragðaref með fylgjendum sínum á Instagram. Uppskriftin er líkt og gefur til kynna hollari en hinn hefðbundni bragðarefur.

Uppistaðan í uppskriftinni er mysuprótín, kúrbítur og spínat.

„Mörg hafa spurt um uppskrift að hnausþykka prótínbúðingnum sem Naglinn slafrar eftir æfingu ásamt súkkulaðihrískökum til að hefja prótínmyndun og viðgerðarferli eftir átökin við járnið. Þessum dúndur búðingi er líka slátrað fyrir svefninn í kvöldsnæðingi svo amínósýrurnar flæði um skrokkinn í lengsta föstuástandi sólarhringsins,“ skrifar Ragga meðal annars við færsluna.

Hollur bragðarefur

Hráefni:

  • 1 skófla súkkulaði mysuprótín
  • 1 tsk xanthan gum þykkingarefni - algjör nauðsyn
  • Handfylli af niðursneiddum kúrbít
  • Handfylli spínat
  • 1-2 tsk skyndikaffiduft
  • 50-60 ml möndlumjólk
  • 10 klakar, í klakaboxastærð, eða tvö handfylli

Aðferð:

  • Skella klökum í blandara og mylja mjölið smærra.
  • Hella þá vatninu, svo prótíndufti, kaffidufti, xanthan gum.
  • Ofan á það kemur kúrbítur og spínat.
  • Hræra svo á hægustu stillingu blandarans. Þar sem massinn er hnausþykkur og lítill vökvi þarf stundum að stoppa og skrapa niður. Það er eðlilegt.
  • Hræra svo í 2-3 mínútur þar til allt er orðið vel blandað saman og þú sérð hnausþykkan búðing í blandaranum.
  • Hægt er að sáldra sweet like sugar erythritol yfir til að fá desertafíling í gleðina.

„Gúrmeti með muldum súkkulaðihrískökum eftir æfingu eða með hnetusmjörssósu fyrir svefninn í kvöldsnæðing,“ segir Ragga.


Tengdar fréttir

Skotheld streituráð Röggu nagla

Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, birti pistil á Facebook með einföldum ráðum sem geta gagnast til að fyrirbyggja streitu í daglegu lífi. Hún segir neikvætt sjálfstal, markaleysi og mataræði spila stórt hlutverk. 

Segir þakklæti bóluefni við kvíða og depurð

„Að skilja hvernig taugakerfið þitt vinnur og virkar er ein dýrmætasta gjöfin sem við getum gefið heilsunni. Með því að hlusta þegar það er tjúnað og tjúllað og nota þá aðferðir sem virka til að dúndra því niður í sefkerfið,“ skrifar sálfræðingurinn og þjálfarinn Ragnhildur Þórðardóttir í pistli á Facebook.

Segir dugnaðarkvíða samfélagsmein

Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir dugnaðarkvíða vera hinn þögla skaðvald samtímans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.