Þetta kemur fram í tilkynningu frá Söngvakeppninni.
Hann mun flytja lagið í seinni undanúrslitum keppninnar sem haldin verða 24. febrúar næstkomandi. Lagið heitir Vestrið villt og var samið af Bashar og Einari Hrafni Stefánssyni og var texti Bashars þýddur yfir á íslensku af Matthíasi Tryggva Haraldssyni. Matthías og Einar eru báðir meðlimir sveitarinnar Hatara.
Hatari hefur áður unnið með Bashar en hann kemur fram á laginu Klefa sem var gefið út árið 2020. Murad er hinsegin listamaður og býr í austurhluta Jerúsalem. Í umfjöllun fréttastofu um útgáfu lagsins á sínum tíma segir að hann semji bæði lög og texta og reyni með list sinn að mölva staðalímyndir og ögra þeirri mynd sem sífellt sé dregin upp af Palestínumönnum.
Hatari vakti mikla athygli þegar sveitin keppti í Eurovision árið 2019 sem haldið var í Ísrael. Á úrslitakeppninni dró sveitin upp fána Palestínu þegar loks kom að stigagjöf til Íslands.
Fyrr í mánuðinum birti sveitin færslu á síðu sína á Instagram þar sem þeir hvöttu stjórn keppninnar til að meina Ísrael þátttöku.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að Hafsteinn Þráinsson, einnig þekktur sem CeaseTone, muni keppa með lagið Ró. Það er samið af honum og Halldóri Eldjárn og textann samdi Una Torfadóttir.
Hera Björk freistir gæfunnar í keppninni í ár með lagið Við förum hærra. Eins og flestum er kunnugt keppti hún í Eurovision fyrir hönd Íslands árið 2010 með laginu Je ne sais quoi.
Meðal annarra keppanda eru Inga Birna Friðjónsdóttir, sem gengur undir nafninu Blankiflúr. Hún syngur lagið Sjá þig. Ásdís María Viðarsdóttir gengur undir sviðsnafninu ANITA og syngur lagið Stingum af. Sunny, eða Sunna Kristinsdóttir syngur lagið Fiðrildi.
Dúóið VÆB syngur lagið Bíómynd, Sigga Ózk sem keppti einnig á síðasta ári syngur lagið Um allan alheiminn og María Agnesardóttir, MAIAA syngur lagið Fljúga burt.
Keppnin hefst 17. febrúar og seinna undanúrslitakvöldið verður 24. Fjögur lög komast áfram úr undanúrslitakvöldunum tveimur í gegnum símakosningu landsmanna. Framleiðendur keppninar geta svo hleypt einu lagi enn áfram. Það verða því fjögur eða fimm lög sem keppa til úrslita í Laugardalshöll 2. mars þar sem sigurvegari Söngvakeppninnar verður kosinn af almenningi og dómnefnd.
Kynnar keppninnar verða þau Unnsteinn Manuel Stefánsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson.
Lög, flytjendur og höfundar í Söngvakeppninni 2024
Fyrri undanúrslit, 17. febrúar
RÓ
Flytjandi: CeaseTone Lag: Hafsteinn Þráinsson og Halldór Eldjárn Texti: Una Torfadóttir
Sjá þig
Flytjandi: Blankiflúr (Inga Birna Friðjónsdóttir) Lag og texti: FIMM (Hólmfríður Sigurðardóttir, Páll Axel Sigurðsson, Kristín Sigurðardóttir, Albert Sigurðsson og Sólveig Sigurðardóttir)
Stingum af
Flytjandi: ANITA Lag: Ásdís María Viðarsdóttir og Jake Tench Texti: Ásdís María Viðarsdóttir
Fiðrildi
Flytjandi: Sunny Lag: Nikulás Nikulásson og Sunna Kristinsdóttir Texti: Sunna Kristinsdóttir
Bíómynd
Flytjendur: VÆB Lag og texti: Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson
Seinni undanúrslit, 24. febrúar
Vestrið villt
Flytjandi: Bashar Murad Lag: Bashar Murad & Einar Hrafn Stefánsson Texti: Matthías Tryggvi Haraldsson
Við förum hærra
Flytjandi: Hera Björk Lag: Ásdís María Viðarsdóttir, Michael Burek, Jaro Omar og Ferras Alqaisi Texti: Ásdís María Viðarsdóttir
Þjakaður af ást
Flytjandi: Heiðrún Anna Lag: Heiðrún Anna Björnsdóttir Texti: Heiðrún Anna Björnsdóttir og Rut Ríkey Tryggvadóttir
Um allan alheiminn
Flytjandi: Sigga Ózk Lag: Sigga Ózk, Birkir Blær og TRIBBS Texti: Sigga Ózk
Fljúga burt
Flytjandi: MAIAA Lag: Baldvin Snær Hlynsson Texti: Baldvin Snær Hlynsson og María Agnesardótti