Frægir úr fjölmörgum áttum í funheitu partýi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 20. febrúar 2024 19:01 Bjarnólfur Lárusson, Una Sighvatsdóttir og Guðmundur Fertram gerðu sér glaðan fimmtudag ásamt fjölda annarra á Brút. Margt var um manninn á veitingastaðnum Brút í Pósthússtræti á dögunum þar sem skálað var fyrir því að febrúar væri rúmlega hálfnaður og daginn tekið að lengja. Boðið var upp á léttar veitingar, vín og kokteila með tilheyrandi gleði og fram eftir kvöldi.
Brút er veitingastaður sem Michelin mælir með og ákváðu eigendurnir að bjóða til teitis, af því bara, síðastliðinn fimmtudag. Þar mátti sjá fulltrúa úr veitingageiranum, fjölmiðlageiranum, fótboltaheiminum og meira að segja forsetaembættið og Íslensk erfðagreining áttu fulltrúa. Ólafur Örn Ólafsson vert og félagar reiddu fram fína rétti og kunnu gestir vel að meta. Þeir virtust kunna þá list ansi vel að gera vel við sig í mat og drykk. Fanney Kr. Hermannsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Björn Scheving Thorsteinsson og Guðmundur Fertram stilltu sér upp fyrir eina flotta mynd. Ólafur Örn er sérfræðingur í mat og víni. Hér ræðir hann við Skúla Skúlason, stjórnarmann flugfélagsins Play. Una Sighvatsdóttir aðstoðarmaður forseta Íslands og fyrrverandi fréttamaður á spjalli við Kjartan Þorbjörnsson, Golla ljósmyndara Heimildarinnar. Bjarki Gunnlaugsson fyrrverandi fótboltakappi og nú umboðsmaður var í stuði. Svavar Jónatansson, Margrét Erla Maack, Sigrún Helga Lund og Eygló Lárusdóttir skáluðu í boðinu. Árni Vilhjálmsson mynd- og tónlistarmaður var á svæðinu. Rúllukragapeysur, vinnuskyrta eða skyrta og jakki. Það kenndi ýmissa grasa í klæðaburði gesta. David, Ella, Kristín og Kara eru lykilfólk á Brút. Gestir voru í góðum gír. Það er mikilvægt að festa góðar stundir á mynd. Fanney Dóra Sigurjónsdóttir kann þá list vel. Ýmir B Arthúrsson var glæsilega klæddur. Nína Richter fagnaði námsárangri sínum við lögfræðideild Háskólans í Reykjavík á dögunum. David Bensow, Kara Guðmunds og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir voru á svæðinu. Guðmundur Fertram, kenndur við Kerecis, var með bros á vör. Anna Ro Sommelier með rauðvínið. Fólk skellti á stundum upp úr. Laimonas Dom Baranauskas í góðum gír. Bjarnólfur Lárusson og Þóra Clausen voru að sjálfsögðu á svæðinu en þau eru meðal eigenda Brút. Rósa Gísladóttir fagnaði febrúar með góðu fólki. Edda Ívarsdóttir með sitt gullfallega bros. Zuzanna Jedrzejczak skenkir í glösin. Sumir segja að fimmtudagar séu nýju föstudagarnir þegar komi að skemmtanalífinu í Reykjavík. Birna Hrönn Björnsdóttir hjá Pink Iceland elskar fimmtudaga. Hvítvínið var vinsælt. Sigríður Soffía Níelsdóttir, Svavar Jónatansson og Eygló Margrét Lárusdóttir ræddu málin. Rósa Gísladóttir, Bjarki Gunnlaugsson, Emil Ásgrímsson og Freydís Guðný Hjálmarsdóttir. Eirný Sigurðardóttir með eina góða hugmynd. Desarei Thomson stóð vaktina af miklum sóma. Hún hló, hún hló, hún skelliskellihló. Sigrún Helga Lund, tölfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu og prófessor í tölfræði, í banastuði. Rósa Björk Gunnarsdóttir er alltaf til í gott partý. Hið sama má segja um Ingibjörgu Boogie. Lucas Keller var glæsilega klæddur. Bjarki Gunnlaugs og Ágúst Freyr Tacas Ingason fara yfir stöðuna. Líklega þekkja fáir jafnmarga í skemmtanalífinu en Sigrún Helga Lund. Hér er hún með Kristínu Andreu Þórðardóttur og Hannesi Pálssyni. Gunnar Páll Tryggvason framkvæmdastjóri Alfa Framtak var í góðu stuði með þeim Bjarnólfi og Ásmundi, eigendum Eldjárn Capital. Auður Ýr Helgadóttir, Erlendur Svavarsson, Ólafur og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir sem lýsir upp hvert rými sem hún heimsækir. Kara Guðmundsdóttir er snillingur í eldhúsinu. Guðmundur Fertram hafði frá ýmsu að segja enda síðasta ár verið afar viðburðaríkt. Bragi Skaftason á spjalli.
Samkvæmislífið Veitingastaðir Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni „Það besta, versta og skrýtnasta á árinu“ Eitt fallegasta hús landsins sem Duna Laxness ólst upp í Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Barst með snjóflóði út í sjó og fékk hjartaáfall á tíu metra dýpi Hefðum við átt að sjá framboð Höllu Hrundar fyrir strax í febrúar? Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Safnaði fyrir björgunarsveitinni sem kom ömmu úr snjóflóði Fjölgar listaverkum eftir konur á Bessastöðum Helgi og Rakel með listgallerí í miðri íbúð þeirra Sonur Gunnhildar og Erin kominn með nafn Prinsinn kom á undan Kónginum Tilkynningin sem kom af stað óvæntri atburðarás Kári og Eva eru hjón Hafdís ætlar ekki að svara spurningaflóðinu Einfaldar leiðir fyrir andlega vellíðan um hátíðirnar „Þetta byrjaði allt þegar ég var á lausu“ Orði gagnrýni eins og þeir vilji að makinn orði hana Innlit í nýju Airbus vélina sem er nýlent á landinu Dótturdóttir Bjarna Ben komin með nafn „Hvert heldurðu að álagið sé orðið á börnin sjálf?“ Snorri þurfti að veiða sögurnar upp úr Gumma Google Tískudrottningin biðst afsökunar á eineltinu Sjá meira