Lífið

Hatar síma og reynir að svara aldrei í þá

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Mugison er tilnefndur til Hlustendaverðlaunanna.
Tónlistarmaðurinn Mugison er tilnefndur til Hlustendaverðlaunanna. Stöð 2

Höfuðfat af tegundinni Sigzon, eftir íslenska hönnuðinn Sixson, er einn af þeim tíu hlutum sem tónlistarmaðurinn Mugison gæti vart lifað án. Hann segir hattanotkunina einfalda honum hárumhirðuna og ætlar hann að safna hári áður en hann verður sköllóttur.

Mugison er tilnefndur í fjórum flokkum á Hlustendaverðlaunum 2024; fyrir lag ársins, plötu ársins, sem flytjandi ársins og söngvari ársins. Í tilefni hátíðarinnar fengum við að kynnast tónlistarmanninum aðeins betur og heyra hvaða tíu hluta hann gæti vart lifað án.

Klippa: Mugison Hlustendaverðlaun

Tíu hlutir sem skipta mig nærri því öllu máli:

  1. Sigzon er íslenskur hattur búinn til í 101. „Kosturinn að vera með hatta er þarf maður ekki að hugsa um hárið. Safna hári áður en maður verður sköllóttur,“ segir Mugison kíminn.
  2. Gítar af sömu tegund og Elvis Presley átti.
  3. Sundskýla sem sýnir allt - góð í spa og chill en ekki í sundi. 
  4. Tvöhundruð takka græja.
  5. Ferðatölva.
  6. Kraftgalli. „Ég er alltaf með hann í bílnum,“ segir Mugison og sýnir einnig ullarpeysur sem hann notar innan undir gallann. 
  7. Heyrnatól frá Sennheiser.
  8. Sími. „Ég hata síma sko og reyni að svara aldrei í þá. Er allaf með hann á silent,“ segir Mugison sem notar hann frekar til að taka myndir.
  9. Harmonikka.
  10. Ullarsokkar. „Ég er alltaf í þeim, er svo hjátrúarfullur og held að ég deyji ef ég er ekki í þeim,“ segir hann. 

Stjörnum prýdd tónlistarveisla

Glæsileg dagskrá verður á hátíðinni sjálfri þar sem úrslit kosningarinnar verða kynnt og sigurvegarar verðlaunaðir í beinni útsendingu á Vísir.is.

Öllu verður tjaldað til og er von á sannkallaðri tónlistarveislu. Fram koma GDRN, Prettyboitjokkó, Stjórnin, Magni, Hipsumhaps, Mugison, Diljá Péturs, XXX Rottweiler hundar og Herra Hnetusmjör.

Hér fyrir neðan má sjá allar tilnefningarnar:

Miðasala á Hlustendaverðlaunin eru enn í fullum gangi tix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.