Liðin sem spiluðu í Ljósleiðaradeildinni voru mikið í Kastljósinu og báru mörg hver sigur af hólmi í kvöld. ÍBV, FH, Young Prodigies, Ármann, NOCCO Dusty, Breiðablik og Þór sigruðu öll sína leiki. Saga og ÍA þurftu þó að lúta í lægra gegn sínum andstæðingum.
Keppt var eftir „Best of three“ kerfi, en þá þarf lið að sigra tvo leiki af Counter-Strike til að hafa sigur.
Allar lokatölur:
ÍA 1-2 ÍBV
FH 2-0 Fjallakóngar
Young Prodigies 2-1 Hitech
Ármann 2-0 Vallea
NOCCO Dusty 2-0 GoodCompany
SAGA 0-2 Aurora
Breiðablik 2-1 Ulfr
Þór 2-0 Fylkir
Næsta umferð fer fram á fimmtudaginn, hlaupársdag 29. febrúar. Sjá má nánari upplýsingar um stöðu leikja, riðla og uppsetningu móts á frag.is