Lífið

Rit­höfundar nýttu aukadaginn í brúð­kaup

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bragi Páll og Bergþóra fóru sínar eigin leiðir varðandi giftingarhringana.
Bragi Páll og Bergþóra fóru sínar eigin leiðir varðandi giftingarhringana. Bergþóra Snæbjörns

Bragi Páll Sigurðsson og Bergþóra Snæbjörnsdóttir eru hjón. Sannkölluð rithöfundahjón. Þau létu pússa sig saman við persónulega athöfn á heimili sínu í gær, 29. febrúar. Átta ára dóttir þeirra stýrði athöfninni.

Bergþóra segir frá tímamótunum á Facebook-síðu sinni.

„Við Bragi Páll ætluðum að gifta okkur í Vegas árið 2014 þegar við vorum á ferðalagi um Bandaríkin. Svo sólbrunnum við svo skelfilega daginn àður að við hættum við. Síðan er liðinn áratugur og tvö börn og loksins létum við verða af þessu,“ segir Bergþóra.

Andi Elvis Presley sveif yfir vötnum eins og til stóð í Las Vegas fyrir áratug.

„Þar sem Elvis Presley gaf okkur aldrei saman, sungu Bragi og Úa lag með Elvis. Can’t help falling in love,“ segir Bergþóra og vísar til Úrsúlu dóttur þeirra sem verður brátt níu ára.

„Það var svo Úrsúla sem gaf okkur saman en hún samdi ræðuna alveg sjálf. Hún bað mig að passa eins vel upp á pabba sinn og ég passa upp á skóna mína. Sem er fyndið þar sem ég er algjör skóböðull. Svo bað hún pabba sinn að passa jafnvel upp á mig og húsbílinn sinn. Sem er reyndar on point.“

Bragi Páll hefur réttindi til að gefa fólk saman á vegum Siðmenntar og má telja líklegt að hann hafi séð um pappírsvinnuna þótt Úrsúla hafi stýrt athöfninni með glæsibrag.

Uppþvottavélin fór af stað í miðri athöfn.

„Rómantískt - eins og við. Lifi ástin og ljósið.“

Bergþóra var viðmælandi Dóru Júlíu í jólasögu í desember.

Bergþóra og Bragi hafa látið ástandið í Palestínu sig varða og verið áberandi í mótmælum á Austurvelli þar sem ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd. Bergþóra var meðal þriggja kvenna sem fóru á eigin vegum til Egyptalands og komu Palestínufólki með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar til Íslands.

„Við héldum enga almennilega veislu og því eigum við ekki rétt á neinum gjöfum. En ef þið hugsið hlýlega til okkar megið þið endilega gefa okkur þá brúðkaupsgjöf að styrkja söfnunina okkar til að bjarga fólki út af Gaza. Svo að fleiri fjölskyldur fái að njóta þess, sem okkur þykir svo sjálfsagt, að vera saman,“ segir Bergþóra og deilir söfnunarupplýsingum.

Reikningsnúmer: 0515-14-007470

Kt:600217-0380

Aur: 1237919151

„Ef að söfnunin klárast lofum við risapartýi í sumar!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.