Eða svo segir í tilkynningu sem Vísi var að berast úr herbúðum Bashars. Spennan virðist vera að nálgast hástig í tengslum við Söngvakeppnina en keppt verður til úrslita á morgun.
Hefur hvorki aldur né ríkisborgararétt en vill axla ábyrgð
Vert er að hafa bak við eyrað að engir möguleikar eru á framboði; Bashar hefur hvorki aldur sem til þarf né er hann með íslenskan ríkisborgararétt. Líta verður á framboðstilkynninguna í því ljósi. En það verður að segjast að harðlífi er hlaupið í hugsanlega frambjóðendur, margir nefndir en fáir útkallaðir og fáir virðast þora að stíga skrefið.
Í tilkynningu kemur fram að Bashar hafi tilkynnt um þennan vilja sinn á opnum fundi í hljóðveri sínu í Reykjavík rétt í þessu. Bashar segir að ef sá sé vilji þjóðarinnar vill hann ekki víkjast undan því.
„Þegar núverandi forseti Guðni Th. tilkynnti að hann ætlaði ekki að bjóða sig aftur fram þá stóð ég fram fyrir stórum ákvörðunum,“ segir Bashar.
Hann segist feiminn en finna til ábyrgðar: „Menn hafa ekki bara komið að máli við mig. Ég hef komið að máli við sjálfan mig.“
Þjóðin þekki hann bara sem poppstjörnu og kúreka

Í tilkynningu segir að stuðningsfólk Bashars sé þegar farið að tala um Bessastaði sem Basharstaði og notar óspart myllumerkið #Basharstaðir framboðinu til stuðnings á netheimum. Bashar segir að fólk myndi sjá aðra hlið á honum ef hann yrði kjörinn.
„Þið mynduð sjá dálítið öðruvísi Bashar,“ segir hann, en þjóðin þekkir hann nú sem poppstjörnu og kúreka. En hann búi að reynslu og fátt komi honum úr jafnvægi.
„En á hinn bóginn myndi ég líka vera þess konar forseti held ég að ég myndi segja sem svo að það á að færa forsetann að fólkinu. Eða fólkið að forsetanum,“ segir hann.
Meðal þess sem Bashar vill gera er að skera niður ferðalög og dagpeningakostnað og nýta frekar peninginn í að gefa fólkinu kost á að heimsækja forsetann á Bessastöðum.