Lífið

Ís­land fer niður um sæti hjá veð­bönkum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Reynsluboltinn Hera Björk bar sigur úr býtum í einvíginu í Söngvakeppni sjónvarpsins. Veðbankar telja hana ekki jafn sigurstranglega og Bashar sem þurfti sætta sig við annað sætið.
Reynsluboltinn Hera Björk bar sigur úr býtum í einvíginu í Söngvakeppni sjónvarpsins. Veðbankar telja hana ekki jafn sigurstranglega og Bashar sem þurfti sætta sig við annað sætið. Vísir/Hulda Margrét

Eftir að úrslitin í Söngvakeppninni voru tilkynnt í kvöld fór Ísland niður um eitt sæti í spá veðbanka um sigurvegara Eurovision. Fyrir úrslitin var Ísland talið þriðja líklegasta landið til að vinna Eurovision en fór niður í fjórða sæti eftir að Hera vann. Eins fóru líkur Íslands á sigri úr tíu prósentum í sex prósent.

Vísir greindi frá því á fimmtudag að á rúmri viku hefði Ísland skotist upp um fimm sæti í veðbönkum þar sem spáð er fyrir um gengi laganna í Eurovision-söngvakeppninni.

Þar spilaði inn í að Bashar Murad, sem laut í lægra haldi fyrir Heru Björk, var talinn langlíklegastur til að sigra Söngvakeppni sjónvarpsins. Veðbankar höfðu gefið honum 48 prósenta sigurlíkar á meðan Hera Björk var aðeins með um tíu prósent.

En veðbankar hafa ekki alltaf rétt fyrir sér og Hera hafði betur. Hugsanlega hefur hin umdeilda einvígis-útfærsla spilað þar inn í en það hefur nokkrum sinnum gerst að keppandi sem var efstur eftir fyrri hluta úrslitakvöldsins tapar þegar komið er í einvígið.

Það gerðist til að mynda þegar Systur unnu Reykjavíkurdætur sem höfðu verið langvinsælastar í fyrri hluta kosningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.