Lífið

„Ég er að verða afi í ágúst“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hjálmar Örn er yfir sig spenntur að verða afi í lok sumars.
Hjálmar Örn er yfir sig spenntur að verða afi í lok sumars. Egill. Tom

Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur, hlaðvarpsstjarna, er að verða afi lok sumars og segist yfir sig spenntur fyrir komandi hlutverki. Hann greinir frá gleðitíðinudum í hlaðvarpsþætti Hæ Hæ sem er í umsjón hans og Helga Jean Claessen.

„Ég er með stórar fréttir að ég er að verða afi nú offically í ágúst, 13 ágúst. Margrét Halla er ófrísk. Þetta eru risa fréttir,“ segir Hjálmar. Margrét Halla er eldri dóttir Hjálmars. Fyrir á hún eina stjúpdóttur sem færði Hjálmari lítinn kassa með sónarmynd í. 

„Þetta var alveg frábært og alveg geggjuð tilfinning,“ segir Hjálmar ánægður. Helgi veltir því fyrir sér hvernig það er fyrir væntanlegt barnbarn Hjálmars að eiga hann fyrir afa þar sem hann er með mikið athyglisbrest. 

„Ætli einhver eigi afa með svona mikinn athyglisbrest? Afi athyglisbrestur. Þetta væri verið góð bók,“ segir Helgi: 

„Þetta er rosalegt. Það er ekki nóg með það að þú hefur náð að eignast barn á undan mér og barnið þitt er að ná að eignast barn á undan mér.“ 

Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Enn læstur úti en óviss um að hann langi aftur inn

Hjálmar Örn Jóhannsson skemmtikraftur og leikari er ennþá læstur út af samfélagsmiðlinum Facebook eftir að samfélagsmiðillinn hrundi í gær. Hann man ekki lykilorðið sitt en segist þrátt fyrir allt vera að íhuga að hætta bara alfarið á miðlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.