Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar
![Íslandsbanki var á meðal tilboðsgjafa í allt hlutafé tryggingafélagsins TM en bankinn er að 42,5 prósenta hluta í eigu ríkissjóðs. Ólíkt því sem átti við um tilboð Landsbankans þá var sérstakur fyrirvari gerður í tilboðinu frá Íslandsbanka um að kaupin þyrftu samþykki hluthafa.](https://www.visir.is/i/327AF190F6A366E968B4E9A731B1806F3425A5B0CC5AEBA0E5FA0FEBA2932EC0_713x0.jpg)
Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/F33E61BA7A775AE8A5EA55FFB1EFB7A01C559BD6C7AE7A6137EED69759857244_308x200.jpg)
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin
Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar.
![](https://www.visir.is/i/411F1CC495F2645D1FBBE530B2F4C7CE003A42BB9E8FA24271CB34C0039AE3EF_308x200.jpg)
Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann
Bankastjóri Landsbankans segist hlusta á fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðra kaupa bankans á TM tryggingum. Það sé hins vegar hennar hlutverk að reka bankann og auka verðmæti hans.
![](https://www.visir.is/i/DDF8EEC5CD3F88BDB165A182C730F6884A873DB9F97407ECF69903BE4B6A79B6_308x200.jpg)
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar
Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins.
![](https://www.visir.is/i/944CF936F8E1A350A4AD59EEF2A669FFC97FC91B31D1EC600800B73D7601F1C3_308x200.jpg)
„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða.