Lífið

Davíð Helga­son og Isa­bella eiga von á barni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Davíð Helgason og Isa­bella Lu War­burg eiga von á barni á vormánuðum.
Davíð Helgason og Isa­bella Lu War­burg eiga von á barni á vormánuðum.

Davíð Helgason fjárfestir og danska fyrirsætan Isabella Lu Warburg eiga von á öðru barni sínu. Fyrir eiga þau soninn Ágúst en Davíð á einnig tvö börn úr fyrra hjónabandi.

Warburg greinir frá fréttunum í Instagram-færslu þar sem hún sýnir óléttubumbuna og skrifar „Bíðum eftir vorbarninu okkar 🐣🤰🏻“.

Þau hjónin eiga eitt barn fyrir, Ágúst sem fæddist árið 2022. Þau gengu í hjónaband Verslunarmannahelgina á síðasta ári í garðinum við hús þeirra á Hrólfs­skála­vör á Seltjarn­ar­nesi.

Samband þeirra hjóna er ekki mjög gamalt þó það hafi verið viðburðaríkt. Fréttir af parinu bárust fyrst fyrir tveimur árum en þá vakti aldursmunurinn milli þeirra helst athygli. Davíð er fæddur 1977 en Isabella 1999 og því er 22 ára aldursmunur á milli þeirra.


Tengdar fréttir

Fé­lagi Davíðs barst til­boð um sam­runa

Stjórn Unity Software, sem Davíð Helgason stofnaði, barst á þriðjudag samrunatilboð frá hugbúnaðarfyrirtækinu AppLovin. Þrjú prósent hlutur Davíðs í Unity er metinn á 73 milljarða króna í viðskiptunum og hann færi með 1,7 prósent hlut í sameinuðu félagi, ef til samrunans kemur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.