FH er spáð 7. sæti Bestu deildarinnar í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. FH-ingar enduðu í 5. sæti á síðasta tímabili.
Tveir bestu leikmenn FH í fyrra, Kjartan Henry Finnbogason og Davíð Snær Jóhannsson, eru horfnir á braut og þeir skilja eftir sig stórt skarð í sóknarleiknum.
„Ég er rosalega á báðum áttum með FH. Þeir hafa verið ósannfærandi. Kannski öllum að óvörum, nema honum sjálfum, var Kjartan Henry einn besti leikmaður FH og var þeirra aðalmarkaskorari. Þeir eru með Úlf [Ágúst Björnsson] og hafa fengið Sigurð Bjart [Hallsson] sem er ekki enn búinn að sanna sig sem framherji sem skorar tíu mörk eða meira í efstu deild,“ sagði Baldur í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar.
„Lykilatriðið eru þessir strákar í kringum þá sem þurfa að skila plús fimm mörkum. Þú ert með Vuk [Oskar Dimitrijevic], Kjartan Kára [Halldórsson], Arnór Borg [Guðjohnsen], þessa stráka sem þurfa að eiga stöðugt tímabil ef FH ætlar að vera í Evrópubaráttu.“
Atli Viðar Björnsson segir að varnarleikur FH þurfi að vera betri en á síðasta tímabili þar sem liðið fékk á sig fjölmörg mörk.
„Varnarleikurinn var hausverkurinn í fyrra. Liðið fékk á sig 54 mörk sem eru tvö mörk að meðaltali í leik sem er alltof, alltof mikið, langmest af liðunum í efri hluta úrslitakeppninnar. Mér finnst eins og FH hafi verið að taka á því í vetur, vinna í varnarleik. Þeir hafa svolítið notað þriggja miðvarða kerfi og prófa sig áfram,“ sagði Atli Viðar.
„Ef tímabilið á að vera gott hjá FH óttast ég pínulítið þetta; að varnarleikurinn skili alvöru tímabili á kostnað sóknarleiks og FH-liðið verði kannski ekki endilega skemmtilegasta liðið á að horfa.“
Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn er einnig aðgengilegur á Spotify sem og öllum hlaðvarpsveitum.