Vill að bankarnir beri einnig kostnað af ábata sem fylgir miklum gjaldeyrisforða
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Á fyrstu níu mánuðum síðasta árs var um 33 milljarða tap á rekstri Seðlabankans en ársreikningur bankans verður birtur síðar í dag þegar ársfundurinn fer fram.](https://www.visir.is/i/EC73BE730FB964B00B580A8AC200D6C296E5218F150B12182DB45EB778B1BEE4_713x0.jpg)
Á sérstökum aukafundi sínum hefur peningastefnunefnd Seðlabankans ákveðið að hækka fasta bindiskyldu á lánastofnanir með það að markmiði að „dreifa betur“ kostnaði við að reka peningastefnuna og treysta fjármögnun gjaldeyrisforðans. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem bindiskyldan er hækkuð sem að öðru óbreyttu ætti að minnka svigrúm banka til útlána en hlutabréfaverð þeirra hefur lækkað nokkuð eftir tilkynningu Seðlabankans.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/EC73BE730FB964B00B580A8AC200D6C296E5218F150B12182DB45EB778B1BEE4_308x200.jpg)
Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin
Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum.