Lífið

Allir sluppu ó­meiddir frá Ís­lands­móti í skrafli

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Steinþór, Ölvir og Gísli hrósa sigri. 
Steinþór, Ölvir og Gísli hrósa sigri.  Aðsend

Hið árlega Íslandsmót í skrafli var haldið um helgina í Íþöku, bókasafni Menntaskólans í Reykjavík. Steinþór Sigurðsson var þar krýndur Íslandsmeistari.

Ölvir Gíslason landaði öðru sæti og Gísli Ásgeirsson því þriðja. Hildur Lilliendahl hafnaði í fjórða sæti. 

Steinþór hlaut einnig titilinn bingókóngur, en hann náði að klára alla stafina í bakkanum sínum í einni lögn í heil 27 skipti. 

Svokallaður dreifingarmeistari með mesta uppsafnaða stigamun í tíu umferðum var Garðar Guðnason. Ragnhildur Valgeirsdóttir var kosin vinsælasta stúlkan með dynjandi lófataki.

Keppendur voru einbeittir að sjá.

Alls voru 98 orð borin undir dómara. Ferlið er þannig að fyrst er flett upp í orðabók og ef orðið eða orðmyndin finnst ekki þar er heimilt að kalla til dómara utanhúss sem leggur sjálfstætt mat á orðið.

„Allir keppendur sluppu ómeiddir frá mótinu en meðal véfengdra lagna má nefna SLEMBDIR, FASGÓÐIR, NÝSLETT, SUMSUNNI og SKÝHÆÐ sem öll hlutu náð fyrir augum dómara eða orðabókar og BALLVANS, PUNKIRÐU, SPYRÐURS, MÓLEG og AFSOGNU sem dæmd voru ógild,“ segir í fréttatilkynningu frá Skraflfélagi Íslands. 

Þá kemur fram að mótið sé árlegur liður skraflfélagsins síðan árið 2013. 

„Á laugardag voru leiknar sex umferðir og fór keppnin vel fram, enda rík áhersla lögð á prúðmennsku og íþróttamannslega framkomu í skraflsamfélaginu,“ segir í tilkynningunni. Í dag voru síðan leiknar fjórar umferðir og Íslandsmeistari krýndur klukkan tvö. 

Ungir sem aldnir tóku þátt í mótinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.