Lést kornungur og ótryggður frá fjölskyldunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. apríl 2024 07:01 Bjarki ásamt börnunum sínum þeim Heiðrúnu Bjarkadóttur og Ólafi Þór Bjarkasyni. Bjarki Gylfason lést ótryggður í faðmi fjölskyldu sinnar í lok mars aðeins 36 ára gamall eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Honum var ókleift að tryggja sig fyrir alvarlegum áföllum vegna þess að hann var með sáraristilbólgu. Söfnun hefur verið komið af stað fyrir fjölskyldu hans og verða haldnir minningar-og styrktartónleikar á Sviðinu Selfossi 17 apríl næstkomandi.
Bjarki ræddi veikindi sín á opinskáan hátt þegar hann tók þátt í fjáröflunarátaki Krafts fyrr á þessu ári. Bjarki greindist með ristilkrabbamein árið 2022 þá 35 ára gamall og hafði þá verið með sáraristilbólgu í sautján ár og lifað með því. Við það tilefni lýsti Bjarki því að hann hefði verið opinskár með veikindi sín svo fólk vissi hvað væri í gangi. Bjarki var líka liðsfélagi körfuboltaliðs Álftaness. Hans var minnst með mínutu löngu klappi fyrir leik liðsins gegn Hetti í byrjun mánaðarins. Bjarki lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldu sinnar þann 20. mars síðastliðinn en hann skilur eftir sig eiginkonu, Guðrúnu Ástu Ólafsdóttur, og tvö börn, þau Heiðrúnu Bjarkadóttur, tíu ára, og Ólaf Þór Bjarkason, átta ára. Bjarki var uppalinn á Stokkseyri, lagði stund á nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands á sínum tíma og spilaði körfubolta með uppeldisfélagi sínu, Þór Þorlákshöfn, um langa hríð og Álftanesi frá árinu 2022. Hann stundaði veiðar og naut sín mikið í útivist og ævintýrum ýmisskonar, var vinamargur og þeir sem þekktu til hans hafa lýst honum sem einstaklega lífsglöðum, vini vina sinna og frábærum liðsfélaga sem lét ekkert stoppa sig í að lifa lífinu til fulls alla tíð. Einvalalið á tónleikunum „Hann var ótrúlega æðrulaus og ætlaði sér bara ekki að tapa þessu og fór bara í gírinn,“ segir Arnar Pétursson gítarleikari í Mammút og fjölskylduvinur sem er einn þeirra sem skipuleggja tónleikana næsta miðvikudagskvöld. Hann segir sögu Bjarka alla tíð hafa staðið sér nærri en Arnar er með Crohn's sjúkdóminn, sem er af sama meiði og sáraristilbólga. „Maður er líka sjálfur fjölskyldumaður, með þrjú börn og setur sig í þessi spor Bjarka, að deyja þarna frá fjölskyldunni sinni, sem svo í ofanálag þarf að hafa áhyggjur af peningavandræðum vegna einhverra tryggingamála, sem er náttúrulega bara glatað,“ segir Arnar en vegna þess að hann var með sáraristilbólgu og hafði verið með um margra ára skeið gat Bjarki aldrei líftryggt sig. Bjarki og fjölskylda þau Guðrún Ásta, Heiðrún og Ólafur á góðri stundu. Tónleikarnir fara fram á Sviðinu á Selfossi á miðvikudagskvöld 17. apríl og hefjast klukkan 19:00. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína, ekki einungis þeir listamenn sem koma fram heldur meðal annars einnig þeir sem standa að Sviðinu og sjá um tæknimál, skreytingar og veitingar. Miðasala fer fram á vef Sviðsins. Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum verða Diljá Péturs, Guðrún Árný og Júlí Heiðar. Arnar segist hvetja alla sem geta til þess að mæta eða leggja fjölskyldunni lið með öðrum hætti og nefnir að til viðbótar tónleikunum munu Þór Þorlákshöfn og Álftanes efna til vináttuleikjar til styrktar fjölskyldunni í maí næstkomandi. Söfnunarreikningurinn hér að neðan er á nafni Guðrúnar Ástu, eiginkonu Bjarka, og er tekið þar við frjálsum framlögum. Reiknisnr. 0370-26-048318 Kt. 080390-2039 Aur: 868-1930 Arnar í Mammút er einn skipuleggjenda tónleikanna sem haldnir eru í minningu Bjarka og til styrktar fjölskyldu hans.Saga Sig Eftirtaldir koma fram á tónleikunum ásamt frábæru úrvali hljóðfæraleikara: Diljá Pétursdóttir Júlí Heiðar Guðrún Árný Gunni Óla Þórir Geir Fríða Hansen Hara systur ásamt Arnari Mammút og Einsa made in sveitin Dúett - Opera Comedy Sædís Lind Anna María Dagný Sif Heiðrún Bjarkadóttir
Krabbamein Tryggingar Tónlist Börn og uppeldi Heilbrigðismál Mest lesið Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Lífið Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Lífið „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Lífið Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Lífið Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Lífið Bryan Adams seldi upp á hálftíma Lífið Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Lífið Draumurinn rættist að syngja með Bubba Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Margt breyst í leiðsöguferðum á Breiðamerkurjökli eftir banaslysið Heiðrar minningu systur sinnar: „Ég elska þig meira en sólina“ María og Ingileif gjörbreyttu 150 fermetra parhúsi í Vesturbænum fyrir fimm milljónir „Þetta var orðið svolítið hættulegt fyrir mig“ Opnar fyrsta kynlífsklúbbinn á Íslandi Addison Rae á Íslandi Eva sýnir giftingahringinn Helga Lind selur sjarmerandi íbúð í hjarta miðborgarinnar Traustið var löngu farið úr sambandinu Stjarnanna borg á fjalirnar hjá Verzló Við getum gert fullt til að draga úr líkum á heilabilun Uppskrift að umræddasta súkkulaði landsins Inga Lind hlaut blessun á Balí Unnur Birna og Pétur selja raðhúsið „Eins og staðan er núna styttist í endamarkið“ Samþykktu að yngja viðmælandann um fimm ár Hanna húfu til styrktar björgunarsveitunum Fréttastjóri Heimildarinnar orðin móðir Gallabuxnaklæddum Jóni Gnarr meinaður aðgangur að þingsal Sjóðheitt teiti einhleypra og dildókast Sjá meira