Lífið

Þetta þarf að hafa í huga fyrir matar­æði hvolpa

Jón Þór Stefánsson skrifar
Þættirnir Hundarnir okkar hafa hafið göngu sína á Vísi. Myndin er úr safni.
Þættirnir Hundarnir okkar hafa hafið göngu sína á Vísi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur, segir hundaeigendur oft bæta gráu ofan á svart með því að skipta um fóður hjá hvolpum sem eigi í magavandræðum.

Þetta kom fram í fyrsta þætti Hundanna okkar á Vísi. Þar ræddi Steinar um mataræði hvolpa.

„Það er sem betur fer ekki margt sem fer úrskeiðis þegar kemur að hvolpum, þegar þeir koma heim. En það eru ákveðnir hlutir sem geta farið úrskeiðis og það er ýmislegt sem gerir það að verkum, við það að fara yfir frá einu heimili yfir á annað, að ákveðnir veiklekar koma fram. Þeir eru viðkvæmir, og þessir veikleikar geta komið fram einmitt þegar þetta á sér stað,“ segir Steinar, sem tekur fram að þessir veikleikar snúi helst að meltingarveginum.

„Þess vegna er mikilvægt fyrir nýja hvolpaeigendur að átta sig á því að fjölbreytni er ekki að því góða þegar kemur að hvolpafóðri. Margir eigendur eru ginnkeyptir á það að kaupa einhvers konar nammi og dæla í hvolpana sína allskonar úr ýmsum áttum.“Ráð Steinars fellst meðal annars í því að nota fóðrið sem hvolparnir eru á, hvaða fóður sem það nú er, sem nammi.

Klippa: Hundarnir okkar - Veiði og góðar venjur

Þá segir hann jafnframt að hvoplpaeigendur eigi það til að skipta um fóður þegar hvolparnir þeirra séu með í maganum, það bæti þó ekki endilega úr skák.

„Það er ekkert verra fyrir nýjan eiganda en að fá hvolp sem er með pípandi niðurgang. Þá gerist það yfirleitt þannig að fólk vill breyta um fóður, en þá bætir þú eiginlega gráu ofan á svart. Þú vilt helst hafa sem minnsta fjölbreytni, ekki vera að gefa mannamat, og passa upp á að hundurinn sé með jafnvægi.“

Í þessum fyrsta þætti af Hundarnir okkar er skyggnst inn í þjálfun veiðihunda, hvernig má kenna sækja og skila ásamt mikilvægum atriðum í innkallsþjálfun. Þá eru gefin góð ráð varðandi handtök við að klippa klær hunda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.