Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2024 14:55 Cole Palmer skoraði fyrsta mark Chelsea í leiknum í dag. Hér fagnar hann marki sínu. Getty/Chloe Knott Chelsea vann 5-0 sigur á West Ham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni og komst fyrir vikið upp fyrir Manchester United í töflunni. Chelsea og United eru með jafnmörg stig í sjöunda til áttunda sæti en Chelsea er með mun betri markatölu. Chelsea hefur ekki verið ofar á tímabilinu. Eftir þetta tap eru West Ham menn í níunda sæti, nú fimm stigum á eftir liðunum fyrir ofan sig. Þetta er annar sigur Chelsea á Lundúnaslag á stuttum tíma eftir að hafa unnið Tottenham 2-0 í vikunni. Sjö mörk og sex stig er frábær uppskera fyrir lærisveina Mauricio Pochettino. Þetta var stærsti sigur Chelsea á West Ham í efstu deild á Englandi. Chelsea skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleiknum en hefði líka getað fengið á sig mark því West Ham skutu tvisvar í slá Chelsea marksins. Cole Palmer kom Chelsea í 1-0 á 15. mínútu þegar boltinn datt fyrir hann í teignum og Conor Gallagher skoraði annað markið fimmtán mínútum síðar. Þriðja markið skoraði síðan Noni Madueke á 36. mínútu eftir skallasendingu frá Thiago Silva. Seinni hálfleikurinn byrjaði síðan frábærlega fyrir Chelsea þegar Nicolas Jackson skoraði í tómt markið eftir óeigingjarna sendingu frá Noni Madueke. Chelsea innsiglaði síðan sigurinn á 80. mínútu þegar Jackson skoraði sitt annað mark í leiknum, nú eftir stungusendingu frá Moisés Caicedo. Brighton vann 1-0 sigur á Aston Villa í leik sem hófst á sama tíma. Það var mark dæmt af Brighton áður en Joao Pedro skoraði sigurmarkið. Hann lét þá Robin Olsen verja frá sér víti en fylgdi síðan á eftir. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti